Enginn árangur og allt stopp hjá ríkisstjórninni 27. maí 2008 15:40 MYND/Pjetur
Enginn árangur, allt stopp eru orðin sem stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur notar um ríkisstjórnina á eins árs afmæli hennar. Í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi kemur fram að ríkisstjórnin hafi náð nýjum hæðum í sýndarmennsku fyrir helgina þegar hún fagnaði eigin eins árs afmæli með því að bjóða leikskólabörnum í veislu. „Almenningi var ekki boðið í veisluna. Það er von, þar sem lífskjör hafa farið hratt versnandi í tíð núverandi ríkisstjórnar eftir langt samfellt hagvaxtarskeið á meðan Framsóknarflokkurinn sat í ríkisstjórn. Forsvarmönnum atvinnulífsins var ekki heldur boðið í veisluna, enda hefðu þeir sjálfsagt viljað ræða Evrópumálin sem forsætisráðherra keppist við að lýsa ekki á dagskrá. Fasteignakaupendur og seljendur tóku heldur ekki þátt í afmælisfagnaðinum, enda varla um fasteignamarkað að ræða á Íslandi lengur. Sjálfsagt hefðu einhverjir úr þeirra hópi viljað fá svör um framtíð Íbúðarlánasjóðs, sem Framsóknarmenn eru ekki lengur í stöðu til að verja, og hvað líði boðuðu afnámi stimpilgjalda," segir meðal annars ályktun Framsóknarfélags Reykjavíkur. Þá er bent á að íslenskur landbúnaður, stjórnendur menntamála, heilbrigðiskerfisins, landeigendur, sveitarstjórnarmenn og fulltrúar orkufyrirtækja og stóriðju hafi ekki verið í veislunni enda fullvíst að einhverjir úr þeim hópi hefðu tekið upp á því að spyrja óþægilegra spurninga. „Verkum þessarar ríkisstjórnar, sem henni finnst tilefni til að fagna sérstaklega í eigin afmælisveislu, verður best lýst með að snúa örlítið út úr slagorði okkar Framsóknarmanna frá síðustu kosningum, það er: Enginn árangur, allt stopp," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Sjá meira