Foreldrar í Garðabæ kæra sveitarfélagið 19. nóvember 2008 16:19 Frá Garðabæ
Vegna ákvörðunar Garðabæjar um að taka ekki þátt í greiðslu skólamáltíða í grunnskólum bæjarins hafa foreldrar grunnskólabarna í bænum kært sveitarfélagið til menntamálaráðuneytisins. Kæran byggir á grein í lögum um greiðslu á skólamáltíðum í grunnskólum frá árinu 2008. Í kærunni kemur fram að Gjaldskrá bæjarins vegna skólamálsverða í grunnskólum bæjarins sé miðað við fasta mánaðarlega áskrift til nemenda fyrir heitar hádegismáltíðir og sé það fullt verð fyrir máltíðina, en ekki sé miðað við hráefniskostnað líkt og tíðkast í öðrum sveitarfélögum og gert sé ráð fyrir í umræddum lögum. Foreldrarnir sendu bréf til bæjarstjórnar Garðabæjar þann 1.september þar sem bent var á að sveitarfélagið færi ekki að umræddum lögum vegna skólamáltíða. Í bréfinu var farið fram á að Garðabær leiðrétti stefnu sína en niðurstaða bæjarráðs var að gjaldtaka sveitarfélagsins færi ekki gegn ákvæðum nýju grunnskólalaganna. Erna Hrönn Geirsdóttir og Margrét Rúnarsdóttir skrifa undir kæruna fyrir hönd foreldra í Garðabæ. Erna segir að þær hafi tekið að sér að sjá um málið en á bak við þær sé stór hópur foreldra. „Við höfum verið að ræða þetta fram og til baka og ákváðum að ganga í málið og fá þriðja aðila til þess að túlka lögin. Skilningur okkar og bæjarins er ekki sá sami og við viljum bara fá þetta á hreint,“ segir Erna. Hún segir að kjölfar bréfsins sem sent var bæjaryfirvöldum hafi þær verið kallaðar á fund með Gunnari Einarssyni bæjrastjóra. „Það kom ekkert út úr þeim fundi þannig við ætlum að ýta þessu áfram.“ Ekki náðist í Gunnar Einarsson bæjarstjóra í Garðabæ vegna málsins.
Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Hljóp á sig Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira