Námið reyndist ekki eins gott og sagt var 19. nóvember 2008 12:21
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu til að greiða 19 öðrum konum samtals nærri sjö milljónir króna í skaðabætur vegna náms í innanhússtillistun sem ekki reyndist vera eins gott og það var auglýst. Námið var auglýst í blöðum sem alþjóðlegur skóli, The Academy of Colour and Style, sem kenndi útlitsráðgjöf og kostaði námið 560 þúsund krónur. Alls skráðu 33 nemendur sig í námið sem var í umsjón hinnar stefndu. Konurnar 19 sem stefndu henni sögðu fyrir dómi að námið hefði ekki verið eins og það hefði verið auglýst, til að mynda að ekki hefði verið um erlendan aðila að ræða. Dómurinn tók undir með stefnendum og sagði auglýsinguna villandi og þá sagði hann að ekkert styddi fullyrðingu hinnar stefndu um að diplóma, sem átti fást að loknu námi, væri einhvers virði í framtíðinni. Kom enn fremur í ljós að konan var með minna nám á bak við sig en hún bauð nemendum sínum upp á. Þá kom í ljós að helmingur gestafyrirlesara í náminu hafði verið frá verslunum sem voru að kynna vörur sínar. „Að mati dómsins er villandi í auglýsingunni að tala um aðila, sem eru að selja ákveðna þjónustu/vöru, sem gestafyrirlesara, án þess að gera frekari grein fyrir þeim. Ljóst er að mati dómsins, að hver og einn á að geta fengið upplýsingar um vöru og þjónustu með því að fara í fyrirtæki þessara gestafyrirlesara," segir í dómnum. Taldi dómurinn því 560 þúsund krónur ekki sanngjarnt endurgjald fyrir námið heldur einungis 132 þúsund krónur og dæmdi konunum mismunandi háar bætur, allt frá um 120 þúsund krónum til 428 þúsund króna, allt eftir kröfum þeirra.
Mest lesið Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Fleiri fréttir Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Sjá meira