Utanríkisráðherra hjólar á ríkisstjórnarfundi Breki Logason skrifar 14. maí 2008 14:13 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hjólar um borgina þessa dagana.
Ökumenn sem voru á leið til vinnu í morgun fengu margir hverjir samviskubit þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra kom hjólandi á fullri ferð eftir Kaplaskjólsvegi með hjálm á hausnum. Ráðherrann er í einu af fimm keppnisliðum ráðuneytisins í átakinu, Hjólað í vinnuna. „Ég get staðfest það að undanfarna daga hefur hún hjólað á ríkisstjórnarfundi og upp í ráðuneyti enda er hún í einu af keppnisliðum ráðuneytisins í þessu frábæra átaki," segir Kristrún Heimisdóttir aðstoðarkona Ingibjargar Sólrúnar. Kristrún segir Hjörleif Sveinbjörnsson eiginmann Ingibjargar vera mikinn hjólreiðamann og því eigi hún ekki langt að sækja hjólreiðamennskuna. „Ég geti einnig staðfest að hún hefur gríðarlegt úthald. Ég á að baki 154 leiki fyrir KR í efstu deild í knattspyrnu og hún er 17 árum eldri en ég. Engu að síður er ég alltaf á hlaupum á eftir henni," segir Kristrún sem hefur aldrei kynnst öðru eins úthaldi. Aðspurð hvort bílstjóri Ingibjargar hafi af þessum sökum verið í fríi undafarna daga segir Kristrún: „Hann sinnir náttúrulega öðrum verkefnum líka og keyrir hana ýmislegt yfir daginn. En hvort hann hafi verið að keyra eitthvað minna undanfarið veit ég ekki." Þrátt fyrir þennan mikla áhuga starfsmanna ráðuneytisins hefur Kristrún ekki enn sest upp á hnakkinn. „Nei því miður þá hef ég ekki gert það. Ég verð að viðurkenna að ráðherrann tekur mér fram í þessu."
Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Terry Reid látinn Lífið Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Fleiri fréttir Gekk hringinn í kringum landið fyrir vannærð börn í Afríku Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Terry Reid látinn Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum „Mig langar ekki lengur að deyja“ Loni Anderson er látin „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Calvin Harris orðinn faðir Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Sjá meira