Lífið

Gifting á næstunni!

Scarlett Johannsson hefur slegið í gegn í Hollywood.
Scarlett Johannsson hefur slegið í gegn í Hollywood.

Leikkonan glæsilega Scarlett Johansson og kærasti hennar Ryan Reynolds ætla að gifta sig á næstunni. Orðrómur um giftingu hefur verið uppi undanfarið en parið hefur verið að hittast í rúmt ár.

Upplýsingafulltrúi leikkonunnar staðfesti giftingu nú í dag og sagði þau bæði í skýjunum vegna þessa.

Scarlett þykir ein glæsilegasta leikkonan í Hollywood og hefur skotist upp á stjörnuhimininn á síðustu árum. Hún hefur meðal annars leikið í myndum eins og Lost in Translation, The Black Dahlia og The Prestige.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.