Veruleg óvissa um kjaraviðræður framhaldsskólakennara 19. maí 2008 14:39 Aðalheiður Steingrímsdóttir er formaður Félags framhaldsskólakennara. MYND/Heiða
Veruleg óvissa er um framhald kjaraviðræðna framhaldsskólakennara og ríkisins og hafa samningaviðræður gengið hægt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Félagi framhaldsskólakennara. Þar er bent á að kjarasamningur framhaldsskólakennara hafi runnið út um síðustu mánaðamót. Í tilkynningunni segir einnig að framhaldsskólakennarar hafi dregist verulega aftur úr í launum miðað við samanburðarhópa hjá BHM. Samtímis hafi ársnemendum á hvert kennslustarf fjölgað mikið og framleiðni skólanna þannig aukist í ákveðnum skilningi. Í samræmi við það hafi rekstrarafkoma skólanna batnað verulega. „Kennarar, námsráðgjafar og stjórnendur hafa ekki notið ávaxtanna af þeim rekstrarbata. Þetta er ekki í samræmi við markmið þess kjarasamnings sem nú er laus," segir í tilkynningunni. Þá bendir FF á að upplýsingar OECD um samanburð á árslaunum kennara í dollurum á kaupmáttarvirði sýni þar að auki að kennaralaun á Íslandi séu með þeim lægstu í aðildarríkjunum. Úr þessu þurfi að bæta. „Koma verður í veg fyrir að svipað ástand skapist og árið 2000 þegar óánægja kennara með laun og starfskjör leiddi til tveggja mánaða verkfalls," segir Félag framhaldsskólakennara. Enn fremur er bent á þær breytingar sem verða með nýjum lögum um framhaldsskóla.„ Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum telja mjög mikilvægt að menntamálaráðherra og fjármálaráðherra standi sameiginlega að viðræðum við forystumenn félaganna um faglega og kjaralega hlið breytinga sem fyrst. Félagsmenn KÍ í framhaldsskólum gera með öðrum launamönnum þá kröfu til fjármálaráðherra að strax verði gengið til kjarasamninga við ríkisstarfsmenn. Það er allra hagur að eyða óvissunni sem fyrst," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Fleiri fréttir Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Sjá meira