Vilja kyrrsetja eignir auðmanna þar til niðurstaða rannsóknar liggur fyrir 24. nóvember 2008 17:30 Álfheiður Ingadóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. MYND/GVA
Fjórir þingmenn vinstri - grænna hafa lagt fram frumvarp um breytingar á neyðarlögum stjórnvalda. Þar er kveðið á um að Fjármálaeftirlitið geti krafist þess að eignir fyrrverandi eigenda og stjórnenda viðskiptabankanna þriggja og tengdra aðila verði kyrrsettar þar til opinber rannsókn leiði í ljós hvort viðkomandi njóti réttarstöðu sakbornings vegna gruns um refsiverða háttsemi í aðdraganda og í tengslum við setningu laganna. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að óhjákvæmilegt sé að umfangsmikil rannsókn fari fram á þeim atburðum sem urðu valdir að því efnahagshruni sem íslensk þjóð stendur núna frammi fyrir. Rannsóknin geti leitt í ljós að þeir sem mesta ábyrgð báru á starfsemi umræddra banka hafi gerst sekir um saknæma hegðun og að þeir hafi hagnast með óréttmætum hætti á kostnað ríkisins eða annarra einstaklinga eða lögaðila. Hætta á að rannsóknarhagsmunum er spillt Benda frumvarpshöfundar á að með margar vikur séu liðnar frá hruninu án þess að rannsókn á því sé hafin. Hætt sé við að rannsóknarhagsmunum verði spillt og eignum jafnvel skotið undan. „Í núgildandi lögum eru upptöku eigna settar þröngar skorður en miðað við aðstæður er rík ástæða til að rýmka nú þegar heimildir til kyrrsetningar eigna sem að lokinni rannsókn kunna að vera taldar tengjast ólögmætri auðgun eða vera andlag skaðabótakrafna einstaklinga sem hafa orðið fyrir fjárhagstjóni vegna starfsemi bankanna undanfarin ár," segir í greinargerðinni.Með frumvarpinu á að koma í veg fyrir að eigendur og stjórnendur gömlu bankanna ráðstafi eignum sínum á meðan ekkert liggur fyrir hvort, að hve miklu leyti og hverjum þeim beri að bæta það tjón sem orðið hefur vegna hrunsins. „Þrátt fyrir að inngrip í eignarréttinn af þessu tagi eigi sér fá fordæmi verður til þess að líta að um tímabundna aðgerð er að ræða sem skoða þarf í ljósi þeirra sérstöku atvika er leiddu til setningar svonefndra „neyðarlaga"," segir þingmenn vinstri - grænna
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira