Aðgerðaáætlun til bjargar fyrirtækjum kynnt 2. desember 2008 11:50 Ingibjörg Sólrún og Geir H. Haarde kynntu aðgerðirnar í ráðherrabústaðnum í dag. MYND/Jón Hákon Halldórsson.
Þau Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra kynntu í dag á blaðamannafundi aðgerðaáætlun sem miðar að því að aðstoða fyrirtæki landsins í þeim þrengingum sem nú eru uppi. Aðgerðaráætlunin er í tólf liðum og þar er meðal annars opnað á langtímaeign lífeyrissjóða á fasteignum sem þeir hafa lánað fyrir. Auk þess lýsir ríkisstjórnin yfir vilja til að greiða fyrir uppgjöri við erlenda kröfuhafa með því að bjóða þeim hlutafé í nýju bönkunum. Þá er lagt til að bankarnir skipi sérstakan umboðsmann viðskiptavina og auk þess verður liðkað fyrir stofnun endurreisnarsjóðs, öflugs fjárfestingasjóðs atvinnu-lífsins með þátttöku lífeyrissjóða, banka og annarra fjárfesta, þar á meðal erlendra. 1. Stjórnvöld gera bankaráðum hinna nýju banka að setja sér skýrar viðmiðunarreglur um fyrirgreiðslu við fyrirtæki í landinu með það að markmiði að vernda störf og stuðla að áframhaldandi starfsemi lífvænlegra fyrirtækja. Reglurnar taki m.a. til lengingar lána, niðurfærslu skulda, breytingar lána í eigið fé og sameiningar fyrirtækja. Settar verði reglur sem tryggi gegnsæi í ákvarðanatöku bankanna og hlutlæga fyrirgreiðslu, þar sem hugað verði að samræmdum vinnubrögðum gagnvart fyrirtækjum. Innra eftirlit bankanna verði eflt. 2. Stofnuð verði sérstök eignaumsýslufélög á vegum bankanna sem hafi umsjón með eignar-hlutum í fyrirtækjum, þar sem ákveðið hefur verið að breyta skuldum í eigið fé. 3. Skipaður verði óháður umboðsmaður viðskiptavina í hverjum banka. Skal hann m.a. hafa það hlutverk að gæta þess að viðkomandi banki mismuni ekki viðskiptavinum með óeðlilegum hætti, að ferli við endurskipulagningu fyrirtækja og aðrar mikilvægar ráðstafanir sé gagnsætt og skráð og að bankinn gæti að samkeppnissjónarmiðum. Bankaráð velji umboðsmann í hverjum banka og tryggi að hann geti sinnt eftirliti sínu. 4. Við endurskipulagningu fyrirtækja verða valdar leiðir sem efla samkeppni eða hamla samkeppni minnst. Á sama hátt verði svigrúm til að draga úr fákeppni eða markaðsráðandi stöðu nýtt sem kostur er. Þeim tilmælum er beint til bankaráða að hafa hliðsjón af þeim meginreglum um samkeppnissjónarmið sem koma fram í áliti Samkeppniseftirlitsins nr. 3/2008. 5. Ríkisstjórnin mun liðka fyrir stofnun endurreisnarsjóðs, öflugs fjárfestingasjóðs atvinnu-lífsins með þátttöku lífeyrissjóða, banka og annarra fjárfesta, þar á meðal erlendra. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að beita sér fyrir lagasetningu sem rýmkar heimildir lífeyrissjóða til að taka þátt í slíkum fjárfestingum innanlands. 6. Ríkisstjórnin hvetur til þess að í fjárfestingastefnu sinni taki endurreisnarsjóður m.a. tillit til sjónarmiða er lúta að góðum stjórnunarháttum og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja, þar á meðal áherslu fyrirtækja á að viðhalda eða fjölga störfum. Auk þess verður lögð áhersla á launastefnu, jafnréttisstefnu, umhverfisstefnu, framlög til rannsókna og þróunar, mikilvægi starfsemi fyrir grunnþjónustu samfélagsins o.s.frv. 7. Ríkisstjórnin lýsir yfir vilja til að greiða fyrir uppgjöri við erlenda kröfuhafa með því að bjóða þeim hlutafé í nýju bönkunum, m.a. í því skyni að tryggja endurfjármögnun bank-anna, fjölbreyttara bankaumhverfi og greiða fyrir eðlilegum lánaviðskiptum innlendra aðila og erlendra banka. 8. Fyrirtækjum sem uppfylla að öðru leyti skilyrði laga verður gert kleift að gera ársreikninga upp í erlendri mynt með lagasetningu sem gildi afturvirkt frá 1. janúar 2008. 9. Stjórnvöld greiði með lagasetningu fyrir langtímaeign lífeyrissjóða á fasteignum sem þeir hafa lánað fyrir. Þannig má bjóða einstaklingum og fyrirtækjum sem missa fasteignir sínar að búa eða starfa áfram í fasteigninni með því að leigja hana af lífeyrissjóðunum. 10. Lögð verði sérstök áhersla á mannaflsfrekar atvinnuskapandi aðgerðir á vegum ríkisins Leitað verði eftir samstarfi við sveitarfélög um tímasetningu framkvæmda með það fyrir augum að standa vörð um atvinnu fólks og auka hagkvæmni. 11. Stjórnvöld munu beita sér fyrir endurskoðun á ákvæðum hlutafélagalaga, skattalaga og annarra laga í því skyni að auðvelda stjórnendum fyrirtækja að komast í gegnum tímabundna erfiðleika vegna efnahagsástandsins. 12. Ríkisstjórnin mun í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins fara yfir nýsettar reglur um gjaldeyrishömlur sem ætlað er að styrkja gengi krónunnar til að takmarka neikvæð hliðaráhrif þeirra eins og kostur er. Í vinnuhónum áttu sæti utanríkisráðherra, fjármálaráðherra, menntamálaráðherra, iðnaðar- og orkumálaráðherra. Auk þeirra voru í hópnum þingmennirnir Ólöf Nordal, Illugi Gunnarsson og Steinunn Valdís Óskarsdóttir og framkvæmdastjórar stjórnarflokkanna, Skúli Helgason og Andri Óttarsson.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira