Greiðslubyrði getur lækkað um tugi þúsunda 15. nóvember 2008 14:08 Jóhanna Sigurðardóttir. MYND/GVA
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, um breytingu á lögum um greiðslujöfnun fasteignalána til einstaklinga. Markmið frumvarpsins er að koma í veg fyrir að misgengi sem nú er að verða milli launa og lána leiði til aukinnar greiðslubyrði vegna fasteignaveðlána. Meðfylgjandi eru dæmi um áhrif greiðslujöfnunar á greiðslubyrði en þar sést að greiðslubyrði getur minnkað um tugi þúsunda í vissum tilfellum. „Frumvarpið er lagt fram í samræmi við tillögur starfshóps um verðtryggð lán heimilanna sem starfað hefur á vegum félags- og tryggingamálaráðherra," segir í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Þar kemur fram að verði frumvarpið að lögum geti viðskiptavinir allra lánastofnana sem eru með verðtryggð fasteignalán óskað eftir greiðslujöfnun lána sinna, telji þeir að það þjóni hagsmunum sínum. „Miðað við fyrirhugaða gildistöku laganna lækkar greiðslubyrði verðtryggðra fasteignalána um allt að 10% í desember hjá þeim sem nýta sér úrræðið. Miðað við efnahagsspá Seðlabankans er áætlað að greiðslubyrði þessara lána verði í lok næsta árs um 17% lægri en ella hefði orðið án greiðslujöfnunar." Í tilkynningunni er bent á að greiðslubyrði verðtryggðra lána hafi vaxið ört að undanförnu vegna mikillar verðbólgu, samhliða því að kaupmáttur fólks hefur rýrnað. „Við þessar aðstæður þyngist greiðslubyrði fólks af verðtryggðum fasteignalánum verulega vegna þess misræmis sem verður milli lána og launa. Tilgangur greiðslujöfnunarleiðar frumvarpsins er að bjóða lánshöfum leið til þess að brúa þetta erfiða tímabil með því að létta greiðslubyrðina tímabundið meðan niðursveiflan gengur yfir." „Aðferðin við greiðslujöfnun felst í því að reiknuð verður ný vísitala, svonefnd greiðslujöfnunarvísitala sem gefin verður út mánaðarlega," segir einnig. „Í greiðslujöfnunarvísitölunni verður vegin saman launaþróun samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands og þróun atvinnustigs samkvæmt mælingum Vinnumálastofnunar. Ef afborganir samkvæmt þessari vísitölu reynast lægri en afborganir samhvæmt vísitölu neysluverðs, sem er grundvöllur verðtryggingar verðtryggðra lána, er þeim hluta af afborgunum fasteignalánsins sem nemur mismuninum frestað þar til greiðslujöfnunarvísitalan hækkar á ný umfram neysluvísitöluna. Sá hluti afborgana sem frestast er færður á sérstakan jöfnunarreikning sem bætist við höfuðstól lánsins. Þegar og ef afborganir af láninu, reiknað samhvæmt greiðslujöfnunarvísitölunni eru aftur á móti hærri en afborganir reiknað samhvæmt neysluvístölu greiðist mismunurinn inná jöfnunarreikninginn til lækkunar höfuðstóls lánsins. Sé skuld á jöfnunarreikningi við lok upphaflegs lánstíma er lánstíminn lengdur." „Eins og fyrr segir munu allir sem eru með verðtryggð fasteignalán, hvort sem þeir eru í viðskiptum við opinberar lánastofnanir, lífeyrissjóði eða önnur fjármálafyrirtæki með starfsleyfi hér á landi, eiga rétt á greiðslujöfnun lána sinna samkvæmt frumvarpinu, óski þeir eftir því. Slíkri umsókn skal koma á framfæri við viðkomandi lánastofnun og skal hún vera umsækjanda að kostnaðarlausu. Hægt er að segja sig frá greiðslujöfnun síðar á lánstímanum breytist aðstæður lánsþega til betri vegar," segir að lokum um leið og vakin er sérstök athygli á því að greiðslujöfnun muni í raun leiða til aukins kostnaðar fyrir lántaka þegar upp er staðið í formi vaxta og verðbóta. „Því er ekki sjálfgefið að lánshafar kjósi eða hafi hag af greiðslujöfnuninni þótt hún létti vissulega greiðslubyrði af láni tímabundið í niðursveiflu og geti þannig létt á efnahag heimilanna í landinu og þá einkum þar sem staðan er þröng fyrir." Efnt verður til ítarlegrar kynningar á á þessum valkosti við gildistöku laganna. Þá fyrst mun endanleg afgreiðsla Alþingis liggja fyrir og þar með þær reglur sem gilda munu í raun.
Mest lesið Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Innlent Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Erlent Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Erlent Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Innlent Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tveir skjálftar um 3,3 að stærð Fundur hafinn í utanríkismálanefnd Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Sjá meira