Staðfesti sýknudóm í fíkniefnabrotamáli 29. maí 2008 17:45
Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm héraðsdóms Reykjavíkur yfir tveimur mönnum sem ákærðir voru fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot framið í ágóðaskyni í febrúar 2007. Öðrum manninum var gefið að sök að hafa flutt til landsins um 3,8 kíló af kókaíni, ætlað til söludreifingar. Efnið var falið í bifreið sem kom til landsins með flutningaskipi í nóvember 2006. Þá var báðum mönnunum gefið að sök að hafa í sameiningu fjarlægt ætluð fíkniefni úr bifreiðinni og hinum manninum að hafa tekið við vörslum þess í því skyni að afhenda það til söludreifingar. Lögregla hafði þá lagt hald á efnið og komið fyrir gerviefni í þess stað. Mennirnir neituðu báðir sök. Fyrrnefndi sakborningurinn annaðist tollafgreiðslu bifreiðarinnar eins og í ákæru greinir og hann hefur sjálfur borið um þótt hann neiti því að hafa gert það í þeirri trú að fíkniefnin sem flutt voru til landsins væru þá falin í bifreiðinni. Hann hefur staðfastlega neitað að hafa vitað um fíkniefnin. Talið var að þrátt fyrir að framburður mannanna væri með nokkrum ólíkindablæ hefði ákæruvaldinu ekki tekist að færa fyrir því sönnur að þeir væru sekir. Voru mennirnir því sýknaðir.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira