Vilja afturkalla sölu Fríkirkjuvegar 11 10. apríl 2008 14:39 Þorleifur Gunnlaugsson.
Þorleifur Gunnlaugsson, borgarráðsfulltrúi vinstri grænna, lagði í dag fram tillögu þess efnis að borgarráð samþykki að leita leiða til að afturkalla sölu á fasteigninni Fríkirkjuvegi 11 þar sem komið hefði í ljós að nýr eigandi ætti erfitt með að nýta eignina án verulegra breytinga á Hallargarðinum, almenningseign Reykvíkinga. „Þetta mál var tekið af dagskrá og það er í þriðja sinn sem það gerist. Þetta er greinilega mikið vandræðamál fyrir valdhafana," sagði Þorleifur í samtali við Vísi. „Fríkirkjuvegur 11 er hluti af Hallargarðinum og það er mjög erfitt að skilja þetta tvennt að. Þeir sem gera hæsta tilboð, Novator, skilyrða tilboðið því að gerðar verði ákveðnar breytingar á Hallargarðinum, torg við kjallara verði lækkað og gerði bak við húsið rofið. Auk þess verði engu breytt í garðinum nema með þeirra samþykki," sagði hann enn fremur og bætti því við að þeir Novator-menn krefðust þess einnig að geta lokað garðinum algjörlega með aðstoð lögreglu ef ákveðnir gestir þeirra gistu þar. Tæki sá áskilnaður til allra daga ársins nema 17. júní og menningarnætur. „Við leggjum til að hætt verði við þessa sölu og borgarstjóri var sammála okkur á sínum tíma um að það ætti ekki að selja þetta hús," sagði Þorleifur að lokum.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira