Innlent

Skortur á sameiginlegum farvegi fyrir ábendingar vegna bankahruns

Embætti skattrannsóknarstjóra er við Borgartún.
Embætti skattrannsóknarstjóra er við Borgartún.
Bæði Fjármálaeftirlitinu og skattrannsóknarstjóra hafa borist ábendingar í tengslum við hrun bankanna en engar kærur hafa borist um meinta ólöglega háttsemi í kjölfar eða aðdraganda hrunsins til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra. Skattrannsóknarstjóri segir skorta farveg eins og ábendingalínu þar sem fólk geti komið ábendingum um hugsanleg lögbrot á framfæri.

Eins og fram hefur komið hyggjast stjórnvöld setja á fót embætti sérstakstaks saksóknara sem ætlað er að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda og í tengslum við bankahrunið í október. Fram hefur komið að þess utan geti þeir sem hafi upplýsingar eða gögn um hugsanlega refsiverða háttsemi leitað til Fjármálaeftirlitsins, skattrannsóknarstjóra og efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra.

Þær upplýsingar fengust hjá Fjármálaeftirlitinu að því hefði borist nokkur fjöldi ábendinga í kjölfar og í aðdraganda þeirra atburða sem átt hefðu sér stað á íslenskum fjármálmarkaði undanfarið. „Fjármálaeftirlitinu berast ávallt ábendingar, þó þeim hafi fjölgað nokkuð undanfarið. Allar ábendingar sem berast Fjármálaeftirlitinu eru metnar og skoðað hvort tilefni er til nánari athugunar," segir í svari eftirlitsins til Vísis.

Helgi Magnús Gunnarsson, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, segir engar kærur hafa borist á borð deildarinnar vegna hrunsins. Hann hvetur alla þá sem hafi eitthvað í höndunum sem þeir telja að geti varðað við lög að koma þeim upplýsingum á framfæri við deildina.

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri tekur undir með Helga og segir embættið vilja fá sem flestar ábendingar um hugsanlega refsiverða háttsemi. Hún segir embættinu þegar hafa borist nokkrar ábendingar í tengslum við hrun bankanna og verið sé að skoða þær.

Bryndís vekur athygli á því að skortur sé á sameiginlegum farvegi stofnana þar sem fólk geti komið ábendingum á framfæri, til að mynda ábeningarlínu (e. hotline) líkt og tíðkast víða erlendis. Bryndís vísar til fregna frá Bandaríkjunum en þar hafa Alríkislögreglan og skattrannsóknayfirvöld komið á fót slíkri ábendingalínu í tengslum við rannsókn á fjármálastofnunum þar í landi.

Hún bendir á að margar stofnanir hér á landi skoði ýmsa anga bankahrunsins og að störf þeirra geti skarast. Með ábendingalínu eða sérstöku netfangi væri hægt að fara yfir upplýsingarnar og beina þeim í réttar áttir. Bryndís telur að mikið af upplýsingum liggi hjá hinum almenna borgara og mikivægt sé að fólk geti komið þeim upplýsingum auðveldlega á framfæri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×