Innlent

Ríkislögreglustjóri fundaði með litháískum starfsbróður sínum

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Telycenas Vizgirdas kveðjast að fundi loknum í Vilnius, höfuðborg Litháens.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Telycenas Vizgirdas kveðjast að fundi loknum í Vilnius, höfuðborg Litháens. Mynd/ Ríkislögreglustjóri.

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri átti í morgun fund með hinum litháíska starfsbróður sínum, Telycenas Vizgirdas. Fundur þeirra fór fram í Vilnius, höfuðborg Litháens.

Í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra segir að margvísleg lögreglumálefni hafi verið rædd. Ákveðið hafi verið að efla samvinnu Íslands og Litháens á þessu sviði og muni það samstarf meðal annars taka til skipulagðrar glæpastarfsemi. Ákvörðunin feli meðal annars í sér gagnkvæm skipti á upplýsingum.

Yfirmaður rannsóknardeildar litháísku lögreglunnar, Algirdas Matonis, sat einnig fundinn. Hann hefur einnig þegið boð um heimsókn til Íslands.

Vizgirdas og Matoniz hafa báðir þegið boð Haraldar Johannessen um heimsókn hingað til lands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×