Námsmenn erlendis fá ekki sjálfkrafa aukalán vegna kreppunnar 13. nóvember 2008 11:37 MYND/GVA
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að umsóknir námsmanna erlendis um aukalán vegna kreppunnar verði metnar hver fyrir sig og því fái námsmenn lánið ekki sjálfkrafa. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri - grænna, vísaði í fyrirspurn sinni til samkomulags sem Samband íslenskra námsmanna erlendis hefði gert við stjórnvöld vegna hruns íslensku krónunnar. Þar væri veigamest aukalán vegna röskunar á högum erlendis. Hins vegar kæmi fram að nemandi þyrfti að sýna fram á sára neyð til þess að fá slíkt lán og spurði Katrín hvort slík sár neyð hefði verið skilgreind. Sagði hún nefndarmenn í menntamálanefnd hafa fengið fjölmargar fyrirspurnir frá námsmönnum vegna þessa og spurði hún því ráðherra hvernig skilgreint yrði hverjir fengju þessi aukalán. Menntamálaráðherra sagði ljóst að menn væru að fara í þessa vegferð í fyrsta sinn og mikið álag væri á starfsfólki Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Við ættum að nýta menntakerfið til þess að koma til móts við þá sem væru í erfiðleikum. Hins vegar sagði hún að það væri ekki þannig að fólk fengi aukalánin sjálfkrafa heldur væri hver beiðni frá námsmönnum erlendis metin sérstaklega. Það væri mikil alvara að taka á þessum málum því það væri stór hópur sem hefði orðið fyrir skakkaföllum vegna kreppunnar. Voru Katrín og Þorgerður sammála um að nýta ætti Lánasjóðinn til þess að aðstoða fólk við núverandi aðstæður og tryggja yrði að fólk gæti lokið sínu námi.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Sjá meira