Stjórnarflokkar reyna að ná saman í stórum málum 13. nóvember 2008 12:00 MYND/GVA
Stjórnarflokkarnir freista þess að ná saman um stefnumörkun varðandi yfirstjórn Seðlabanka Íslands, Evrópusambandsaðild og upptöku evru. Það virðist vera dagaspursmál um hvort flokkarnir nái saman, en meiningarmunur er djúpstæður í þessum veigamiklu málefnum. Stíf fundahöld standa nú yfir hjá Samfylkingunn og Sjálfstæðisflokknum, meðal annars um endurmat á peningamálastefnunni, Evrópumálum og stjórnarsáttmálanum sem flokkarnir gerðu með sér við upphaf samstarfs síns. Telja má víst að náist ekki að leysa þann mikla skoðanamun sem fyrir hendi er um þessi mál gæti það orðið stjórninni að falli. Andrúmsloftið á fundum stjórnarflokkanna er, samkvæmt heimildum fréttastofu, vinsamlegt en svo virðist sem það skýrist í dag eða á næstu dögum hvort samstaða náist um endurmat á þessum veigamiklu málefnum. Varðandi Evrópumál þá hafa forystumenn Samfylkingarinnar ítrekað lýst yfir stuðningi við inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru og nú síðast í gær sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður flokksins, að ákvörðun um aðild að ESB væri eina leiðin út úr efnahagskreppunni. Sjálfstæðismenn hafa síðustu vikur opnað nokkuð á umræðuna en stíga þó mjög varlega til jarðar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur reyndar talað opinskátt um Evrópumálin og jafnvel þótt hún hafi undirliggjandi stuðning margra flokkssystkina sinna þá hefur málflutningur hennar verið í óþökk arms innan flokksins sem kenndur er við Davíðsarfleifðina. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur farið mun hægar í sakirnar en varaformaðurinn. Hann hefur ekki útilokað Evrópuumræðuna, en segir aðildarviðræður ekki á dagskrá. Og þá er það eldfima umræðan um hvort Davíð Oddsson eigi að vera eða fara úr Seðlabankanum en einarður stuðningur Geirs við Davíð stendur ekki aðeins honum fyrir þrifum þessa dagana heldur virðist samstarf stjórnarflokkanna einnig farið velta á því hvort stefnubreyting verði í málinu. Reynt verður til þrautar, samkvæmt heimildum, að finna leið til að stjórnarflokkarnir geti unnið áfram saman en staða mála er afar viðkvæm.
Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hljóp á sig Innlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Fleiri fréttir Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Sjá meira