Leitað að lausn á 900 milljarða kröfu Breta og Hollendinga 13. nóvember 2008 13:47
Til tíðinda gæti dregið í deilum íslenskra stjórnvalda við Breta og Hollendinga vegna Icesave-reikninganna í dag eða á morgun. Þetta herma heimildir Vísis. Eins og kunnugt er eru deilurnar taldar koma í veg fyrir að Ísland fái lánafyrirgreiðslu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, sagði í sjónvarpsviðtali í Hollandi fyrr í vikunni að Hollendingar myndu standa í vegi fyrir því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn afgreiddi beiðni Íslands um aðstoð þar til deilan um Icesave yrði leyst. Samkvæmt heimildum Vísis er nú unnið að samkomulagi við þjóðirnar en ekki hafa fengist upplýsingar um í hverju það myndi felast, hvort Íslendingar fallist á kröfur ríkjanna eða hvort málinu verði skotið til óháðra aðila. Kröfur ríkjanna nema 900 milljörðum króna samkvæmt upplýsingum Vísis.Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu eru stanslausar viðræður í gangi við að ná samningum í Icesave-deilunni við Breta og Hollendinga. „Við getum sagt að það eru stanslausar viðræður á mörgum stöðum. Það eru haldnir fundir, menn hringja símtöl og senda tölvupósta. Allt sem hægt er að gera er gert. En þetta er ekkert einfalt mál," segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins. Kristján segir lítið annað hægt að segja um stöðu mála.Það eru margir óvissuþættir í málinu sem meðal annars snúa að því hvort okkur verði lánað fyrir reikningunum, á hvaða kjörum það lán yrði og hvort það yrði til langs eða skamms tíma.Meðal annars er verið að tala við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, en í frétt á forsíðu Morgunblaðsins í morgun segir að öll 27 aðildarríki ESB leggist gegn því að Íslandi fái aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins nema fyrst verði samið um Icesave-skuldirnar.Vísir hefur í allan morgun reynt að fá svör frá ráðamönnum þjóðarinnar. Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarkona utanríkisráðherra, hefur ekki svarað símanum. Það hefur Gréta Ingþórsdóttir, aðstoðarkona forsætisráðherra, heldur ekki gert, sem og Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra. Þorfinnur Ómarsson, upplýsingafulltrúi viðskiptaráðuneytisins, sagði þó í samtali við Vísi að málið væri ekki á forræði ráðuneytisins heldur forsætis- og utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira