Vilja klára vinnu við hollenska lánið 13. nóvember 2008 15:04 Wouter Bos er fjármálaráðherra Hollendinga.
Hollendingar leggja áherslu á að ljúka vinnu varðandi sameiginlega viljayfirlýsingu þeirra og Íslendinga sem fjármálaráðherrar ríkjanna gáfu út þann 11. október síðastliðinn. Yfirlýsingin miðar að því að Hollendingar láni Íslendingum til þess að unnt verði að standa skil á greiðslum úr tryggingasjóði innistæðueigenda til hollenskra sparifjáreigenda. Hendrieneke Bolhaar, talskona Wouter Bor, fjármálaráðherra Hollands, segir í samtali við Vísi að Hollendingar leggi á það áherslu að ljúka þessari vinnu eins fljótt og auðið er. Bolhaar sagði í viðtali við fréttastofu AFP í gær að Íslendingar þyrftu að standa við þær skuldbindingar sem þeir hefðu þegar gert við ríki varðandi Icesave, áður en þeir fái aðstoð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þegar Vísir spurði Bolhaar hvort eitthvað hafi breyst frá því viljayfirlýsingin hafi verið gefin út sagði hún svo ekki vera, hins vegar þurfi að ganga frá þeim málum með lögformlegum hætti. Aðspurð hvort það þýði að það þurfi að gerast áður en Hollendingar geti stutt beiðni Íslendinga svarar hún: „Við viljum bara klára þetta eins fljótt og auðið er." Hollenska viðskiptablaðið NRC greinir svo frá því í dag að samkvæmt heimildum sínum sé íslenska ríkisstjórnin að íhuga að afþakka lánið frá Hollendingum. Blaðið segir yfirvöld á Íslandi vilja bíða með lántökur vegna Icesave uns dómstólar í Hollandi og Bretlandi úrskurða hvort þarlendir eftirlitsaðilar hafi brugðist eftirlitsskyldu sinni varðandi Icesave og Landsbankann. Ekki náðist í Árna Mathiesen fjármálaráðherra þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fleiri fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Sjá meira