Segir Gunnar Pál hafa saurgað nafn VR Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. nóvember 2008 11:55 „
Nafnið VR stendur fyrir virðingu og réttlæti og ég get ekki annað sagt en Gunnar [Páll Pálsson, formaður VR] hafi saurgað það nafn og virðingin og réttlætið séu bara fyrir suma," segir Lúðvík Lúðvíksson, VR-félagi og mótmælandi. „Við erum að mótmæla í hádeginu í dag og munum halda því áfram næstu hádegi. Við fórum á nokkra vinnustaði í gær og hljóðið í fólki er verulega slæmt. Laun hafa ekki hækkað og það er alveg klárt á hverjum það bitnar þegar harðnar á dalnum. Það bitnar á þeim sem lægst hafa launin," segir Lúðvík ómyrkur í máli. Hann segist ekki gefa mikið fyrir yfirlýsingu Gunnars Páls í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun en neðst í þessari frétt má sjá hlekk er vísar á hana. „Ég vil kalla þessa yfirlýsingu kosningaherferð Gunnars Páls. Við erum hvergi bangin og ætlum að herða róðurinn á næstu dögum. Það er bara komið að því að fólkið í landinu sjái að til er réttlæti. Það kemur ekki fram í greininni [yfirlýsingu Gunnars Páls] að sjúkrasjóður VR hefur rýrnað verulega ásamt öðrum eignum félagsins og lífeyrissjóðsins," segir Lúðvík enn fremur og spyr hvers vegna Gunnar Páll hafi ekki gætt að sínum liðsmönnum og selt hlutina í Kaupþingi þegar tók að stefna í óefni. „Svarið við því er einfalt. Hann hefði verið vanhæfur til þess lögum samkvæmt. Gunnar Páll iðrast einskis í þessari yfirlýsingu í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun. Hann er með sömu stjörnurnar í augunum og hann var með þegar hann var að ganga frá sínum launasamningum," segir Lúðvík að lokum.
Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira