Skorar á fólk að nýta aðstoð einungis í neyð 17. nóvember 2008 21:45 Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Pétur Blöndal alþingismaður segir að einungis þeir sem þurfi nauðsynlega á þeim aðgerðum að halda sem ríkisstjórnin kynnti á föstudag til að verja heimilin, eigi að nýta sér þær. Með aðgerðunum vill ríkisstjórnin koma til móts við skuldsett heimili og fólk sem sjái fram á verulega skertar tekjur vegna uppsagna. „Þegar að bankarnir fara á hausinn verður mikið áfall bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Menn missa vinnuna, eignir og hlutabréf. Þetta veldur ákveðnum vanda sem þarf að brúa. Ég vona að einungis lítill hluti þjóðarinnar sé skaðaður og að þetta geti hjálpað fólki yfir þennan hjalla, hvort sem hann er eitt ár þrjú ár eða fjögur ár," segir Pétur í samtali við Vísi. Pétur leggur áherslu á og segist vona að atvinnuleysið verði ekki varanlegt, en á meðan að það vari þurfi að hjálpa fólki að komast yfir þann hjalla. „ Ég hef líkt þessu við domino og það þarf að styðja við kubbana svo þeir hrynji ekki þó að aðrir kubbar falli." Pétur segir að ef fólk muni nýta sér þær heimildir sem að felist í aðgerðum ríkisstjórnarinnar með því að beita greiðslujöfnunarvísitölu og lengja eða skuldbreyta lánum muni höfuðstóll lánanna flytjast aftur. Þeir sem muni halda vinnunni sinni muni ráða betur við skuldbindingar sínar með því að leggja hart að sér og spara. Hann skorar því á fólk að nýta þetta fyrirkomulag ekki nema að það þurfi virkilega á því að halda. „Ég ráðlegg fólki, og hef reyndar gert það í mörg ár, að spara meira og greiða niður lán eins og það mögulega getur," segir Pétur. Hann bendir á að vextir séu mælikvarði á það hversu margir vilja eyða á móti þeim sem vilja spara. Þegar fólk er duglegt við að spara séu vextir lágir en þegar fólk er duglegt við að eyða séu vextir háir.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Sjá meira