Tveir hundar úr Dalsmynni drápust 20. maí 2008 22:33 Máni lifði í þrjá mánuði hjá Guðrúnu. Mynd/ Úr einkasafni.
Það er mjög alvarlegt mál ef hundaræktendur fá leyfi til að selja grunlausu fólki sýkta hunda ár eftir ár. Þetta segir ung kona sem fékk þrjá hunda frá hundaræktendum að Dalsmynni. Tveir þeirra drápust og sá þriðji veiktist alvarlega. Það var á annan í jólum árið 2006 sem Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir fór með vinum sínum til að skoða hunda. Hún féll strax fyrir fallegri og hraustlegri tík af Chihuahua gerð. Tíkin var kölluð Embla. Hundahaldið gekk vel og því var ákveðið að fá annan hund af Chihuahua gerð í ágúst á síðasta ári. Hann var kallaður Máni. Það leið innan við vika þegar farið var að bera verulega á veikindum Mána og því leitaði Guðrún með hann til dýralæknis. Eftir ítrekaðar læknisvitjanir og mikil veikindi sem stóðu yfir í nærri þrjá mánuði drapst Máni. Guðrún segir að hundaræktandinn hafi neitað að endurgreiða henni fyrir hundinn sem drapst en henni hafi boðist að fá nýjan hund. Því hafði verið farið í mars síðastliðnum og fenginn fallegur tibet spaniel rakki. Guðrún segist hafa tekið hann þrátt fyrir að ræktandinn hafi varað hana við því að hann væri með lítilsháttar naflaslit. Hún fékk hundinn, sem hún kallaði Otra, um miðjan aprílmánuð. Rétt rúmlega viku eftir að hún fékk hundinn fór hann að líta veiklulega út. Þremur vikum síðar drapst hann. Tveir hundar sem Guðrún hafði fengið frá Dalsmynni höfðu því drepist. Til að bæta gráu ofan á svart er tíkin Embla fárveik vegna smits frá Otra. Embla mun ekki ná sér að fullu fyrr en eftir níu mánuði. Í samtali við Vísi sagði Guðrún að við krufningu hefði komið í ljós að Otri hefði verið með lifrabólgu og bandorma. Ekki liggi fyrir hvort bandormur af þeirri gerð sem hundurinn var með geti smitast í menn. Guðrún hyggst því leita til heimilislæknis og fá ráðleggingar. Guðrún segist einnig gera ráð fyrir að stefna hundaræktandanum því að fyrir utan það hundarnir og aðstoð dýralækna hafi kostað hundruði þúsunda sé búið að stefna heilsu fjölskyldunnar í hættu. „Það hefur ekki bara áhrif á sálarlíf fjölskyldunnar, heldur eru allir í sýkingarhættu, bæði aðrir heilbrigðir hundar og fjölskyldumeðlimir," segir Guðrún á vefsíðu sinni. Einlæga frásögn Guðrúnar má lesa á vefsíðu hennar.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Sjá meira