Bankamálaráðherra sat ekki fund með Davíð um stöðu bankanna 18. nóvember 2008 17:01 MYND/GVA
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir gagnrýni Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra á stjórnvöld vegna viðvarana um stöðuna í bankakerfinu hafa komið á óvart. Hann vísar enn fremur í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika en þar kom fram að bankakerfið stæði traustum fótum. Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði á fundi Viðskiptaráðs í morgun að forsvarsmenn Seðlabankans hefðu ítrekað varað stjórnvöld við stöðu bankanna. Vísaði hann meðal annars til fundar sem forsvarsmenn Seðlabankans hefðu átt í London í febrúar með erlendum bankamönnum og greiningaraðilum. Þar hefðu hinir erlendu aðilar spurt hvað myndi gerast ef íslensku bankarnir hefðu ekki aðgang að lánsfé á mörkuðum. Það hefði verið ljóst af orðum þeirra að íslenska bankakerfið væri í mikilli hættu og seðlabankamönnum hefði brugðið mjög við það hvernig þessir aðilar sáu fyrir sér framtíðina á Íslandi. Sagði Davíð að fundað hefði verið með íslenskum ráðherrum þegar heim var komið og gert grein fyrir stöðunni. Þeir hefðu rætt við forsvarsmenn viðskiptabankanna sem aftur hefðu fullvissað þá um að fjármögnun þeirra væri tryggð. Samfylkingarþingmenn funda Björgvin sagði í dægurmálaútvarpi Rásar 2 í dag að hann hefði ekki hitt Davíð Oddsson á árinu fyrr en hann kom á ríkisstjórn fyrr í haust. Hann hefði því ekki verið á umræddum fundi hans með ráðherrum. Sagði hann gagnrýni Davíðs koma á óvart, ekki síst í ljósi skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika sem birt var í maí. Þar komu ekki fram neinar alvarlegar áhyggjur af bankakerfinu. Þingflokkur Samfylkingarinnar situr nú á fundi sem samkvæmt upplýsingum Vísis er þetta annar fundur flokksins í dag. Árni Mathiesen fjármálaráðherra var einnig í viðtali í dægurmálaútvarpinu og hann sagðist hafa setið umræddan fund með stjórnendum Seðlabankans. Þá kom fram á vef RÚV og Morgunblaðsins fyrr í dag að Geir H. Haarde forsætisráðherra kannaðist við fundinn en þar sagðist hann ekki minnast þess að bankinn hefði lagt til að farið yrði í sérstakar aðgerðir sem ekki hafi verið orðið við.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira