Stúdentar æfir yfir niðurskurði 14. desember 2008 15:26
Stúdentaráð Háskóla Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við þá tillögu ríkisstjórnar að skerða framlög til Lánasjóðs íslenskra námsmanna og Háskóla Íslands. Ráðið segir ríkisstjórn hundsa þá staðreynd að þegar kreppir að sæki fleiri sér menntun í háskóla, og sé hlutaverk Lánasjóðsins brýnna en ella. „Nýjustu tölur sýna að sexföldun er í skráningu í grunn- og framhaldsnám HÍ á vorönn miðað við í fyrra. Af hverju gera forsendur fjárlaga ráð fyrir aðeins 5% fjölgun námsmanna á lánum þegar fyrir liggur að þeim muni fjölga um 20 eða jafnvel 30 prósent þegar aukinn fjöldi hefur nám, atvinnutækifæri gufa upp og baklönd verða ótryggari fjárhagslega? Af hverju hundsar ríkisstjórnin sína eigin stefnumörkun um eflingu menntunarstigs þjóðarinnar og þá tölulegu staðreynd að menntunarstig Íslendinga rétt hangir í meðallagi miðað við nágrannaþjóðir okkar?" segir í ályktun sem ráðið sendi frá sér í dag. Einnig gerir Stúdentaráð athugasemd við niðurskurð við Háskóla Íslands sem nemur fjárhæð rannsóknarsamnings sem menntamálaráðherra hefur gert við skólann. Ráðið segir sterkasta andsvar við áföllum í efnahag- og atvinnulífi að efla menntun, rannsóknir og nýsköpun eins og fulltrúar stúdenta hafi ítrekað bent á undanfarið. „Fyrir síðustu alþingiskosningar lofuðu allir stjórnmálaflokkar að efla lánasjóðskerfið. Vissulega standa Íslendingar fyrir breyttum aðstæðum og rúmlega 20.000 stúdentar landsins eru engin undantekning. Það er þó makalaust að þegar stúdenta- og námsmannahreyfingar landsins hafa æ ofan í æ talað fyrir nauðsyn þess að fjármagn til LÍN verði ekki skert og hlúið verði almennilega að háskólum verði niðurstaðan eins og raun ber vitni - verulegur niðurskurður sem og váleg skilaboð ríkisstjórnar til stúdenta. Stúdentaráð Háskóla Íslands fer fram á að stjórnvöld endurskoði afstöðu sína. " segir ennfremur í ályktuninni.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira