Farþegum fjölgar í strætó 18. nóvember 2008 13:13
Farþegum Strætó hefur fjölgað umtalsvert á helstu akstursleiðum og þeir nota Strætó oftar. Samkvæmt talningu sem Strætó bs. framkvæmir í október ár hvert er fjölgun farþega frá síðasta ári umtalsverð á helstu leiðum og allt upp í 35% á einstaka leiðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó. Þar segir ennfremur: „Þegar litið er til heildarfarþegafjölda tóku alls 888.070 manns Strætó í október nú samanborið við 808.242 á sama tíma í fyrra, sem er u.þ.b. 10% aukning. Í október 2006 voru farþegarnir 711.176 og 643.458 í október 2005, sem þýðir að farþegum Strætó hefur fjölgað um rúm 38% frá 2005. Sem dæmi um aukninguna nú má nefna að farþegum á leið 1, sem er sú strætóleið sem flestir farþegar nota daglega, hefur daglegum notendum fjölgað að meðaltali um u.þ.b. 700 milli ára, sem er 22% fjölgun. Þar með er hún fyrsta strætóleiðin sem yfir 4.000 farþegar nýta sér að meðaltali hvern virkan dag og sú fyrsta sem rýfur 100.000 farþega múrinn á einum mánuði. Á leið 6 hefur daglegum farþegum fjölgað um 550 að meðaltali á virkum dögum og á leið 4 er aukningin milli ára u.þ.b. 27%. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir fjölgun farþega í Strætó nú vera fagnaðarefni en hana megi væntanlega rekja til efnahagsástandsins og sparnaðarráðstafana heimilanna. „Við bjóðum nýja farþega velkomna og vonum að þeir muni nýta þjónustu Strætó áfram. Fjölgunin sýnir að almenningur á höfuðborgarsvæðinu er í auknum mæli farinn að nota strætó til að bregðast við erfiðum efnahagsaðstæðum og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að bjóða áfram sem besta þjónustu í erfiðu árferði."
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fleiri fréttir Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Sjá meira