Innlent

Fátt á miðunum

Sárafá fiskiskip eru á sjó og eru flest, sem þar eru, á landleið. Ekki mátti veiða síld eftir nítjánda desember og svo er jólafrí annarra sjómanna að ganga í garð.

Auk þess er stormspá fyrir flest mið umhverfis landið. Ísfisktogarinn Arinbjörn RE í eigu HB Granda verður þó á sjó yfir hátíðirnar og á hann að landa ferskum fiski á Þýskalandsmarkaði eftir áramót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×