Strákarnir okkar spila alltaf vel í kreppu Breki Logason skrifar 13. ágúst 2008 12:00 Sigrinum á Þjóðverjum fagnað.
Sigur íslenska handboltalandsliðsins á heimsmeisturum Þjóðverja á Ólympíuleikunum í Peking í gær, hefur ekki farið framhjá neinum. Liðið virðist í fínu jafnvægi og er til alls líklegt. Óneitanlega fara menn að velta fyrri sér hver ástæðan fyrir þessu góða gengi sé. Er markvarslan að skipta sköpum? Eru hinar þjóðirnar að spila verr en áður? Eða er Guðmundur að spila rétta taktík? Ef grannt er skoðað sést hinsvegar að hið slæma efnahagsástand sem ríkir í landinu getur skipt sköpum. Íslenska handboltalandsliðið spilar nefnilega oft glimrandi vel í kreppu. B-keppnin í handbolta sem fram fór í Frakklandi árið 1989 er einhver merkilegasti viðburður í íslensku íþróttalífi. Jafnteflið við heimsmeistara Frakka á Laugardalsvelli bliknar í samanburði við sigur íslendinga á Pólverjum í úrslitaleik keppninnar. Veturinn 1989 - 1990 voru uppi miklir erfiðleikar í efnahagsástandi þjóðarinnar. Skömmu síðar var hin merka „Þjóðarsátt" gerð. Í nýársávarpi Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta þann 1.janúar árið 1989 má sjá að lítil bjartsýni var meðal íslendinga: „Því nú um skeið hefur vofa verið á sveimi meðal okkar og breitt úr sér freklega - og er kölluð kreppa. Í fréttum er á því klifað að hún glotti framan í okkur í hverri gátt. Því er vitanlega ekki að neita að við eigum við nokkra örðugleika að stríða, samdrátt á ýmsum sviðum, rekstrarvanda af einu og öðru tagi. Sumir segja að þjóðartekjur muni minnka nokkuð." Þrátt fyrir þessar hrakspár hér heima spiluðu „Strákarnir okkar" glimrandi í B-keppninni og voru sannkallaðar þjóðhetjur í augum landsmanna. Kristján Arason hefði getað orðið forseti ef hann hefði haft áhuga á embættinu. Árið 2002 mátti einnig sjá nokkra örvæntingu í íslensku efnahagslífi. Menn töluðu um kreppu sem þó stoppaði stutt við. Efnahagslífið tók nokkra dýfu og einhverjir efuðust um einkavæðingu bankanna sem þá var á lokastigi. Sama ár lenti íslenska landsliðið í fjórða sæti á Evrópumótinu í Svíþjóð. Fólk gleymdi hrakspám í íslensku efnahagslífi og ræddi frekar um frábæran árangur íslenska landsliðsins. Kreppan sem nú ríkir í þjóðfélaginu hefur ekki farið framhjá neinum. Glænýir Range Rover jeppar standa óhreyfðir á bílasölum landsins og þeir sem áður ferðuðustu með einkaþotum kaupa sér nú miða í almennu farrými Iceland Express. Stórhuga viðskiptamenn hrópa á Hjálp með hundruðir fermetra af tómu verslunarrými. Og enn standa „Strákarnir okkar" undir nafni. Öruggur sigur gegn heimsmeisturum Þjóðverja og Rússneski björninn verður að litlum sætum bangsa í höndunum á okkur. Árangur íslenska landsliðsins hefur lítið með markvörslu, taktík eða getu leikmanna að gera. Það eina sem skiptir máli er að það sé lægð í efnahagslífinu hér heima. Gerið Smáralindina klára, því „Strákarnir Okkar" eru á leiðinni heim með verðlaunapening.
Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Lífið Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Lífið samstarf Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði Sjá meira