Lögreglukórinn syngur við 15. lögreglumessuna Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. apríl 2008 18:16 Kórinn á góðri stund í Grafarvogskirkju. MYND/Pjetur Sigurðsson
Lögreglukór Reykjavíkur undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar syngur við lögreglumessu í Langholtskirkju á fimmtudaginn, 1. maí. Þetta er í fimmtánda skipti sem sérstök lögreglumessa er haldin. „Við byrjuðum á þessu fyrir 15 árum og þetta var svona innlegg okkar í þetta sem starfsstéttir eru að gera 1. maí, við förum nú ekki í kröfugöngu," sagði Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn. „Við erum að styrkja andann og fá innlegg frá góðum ræðumönnum, Snorri Magnússon, nýkjörinn formaður landssambandsins [lögreglumanna] mun tala auk þess sem kórinn syngur þarna. Þetta eru voðalega léttar og skemmtilegar messur og svo setjumst við að kaffidrykkju og góðu meðlæti á eftir og njótum þess að eiga sameiginlega stund," sagði Geir Jón enn fremur. Hann sagði messurnar hafa verið vel sóttar fram að þessu, bæði af fjölskyldum lögreglumanna og almenningi. Lögreglumessan hefði farið fram í ýmsum kirkjum, t.d. einu sinni á Akureyri. Séra Hans Markús Hafsteinsson, héraðsprestur og fyrrverandi lögreglumaður, þjónar fyrir altari ásamt sr. Kjartani Erni Sigurbjörnssyni sjúkrahúspresti sem jafnframt er prestur lögreglunnar. Messan hefst klukkan 11 á fimmtudagsmorgun.
Mest lesið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Fleiri fréttir Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sjá meira