Vinstri græn funda á Akureyri 5. apríl 2008 13:27
Stjórn Vinstri grænna hittist á Hótel KEA á Akureyri í dag. Á fundinum var samin ályktun um um efnahagsmál, umhverfis og byggðamál. Hún er svohljóðandi: Akureyri: Blómlegt samfélag á landsbyggðinni án stóriðju Stóriðjustefnan er á fullri siglingu, drifin áfram meðal annars af ráðherrum Samfylkingarinnar. Frávísun umhverfisráðherra á kæru Landverndar undirstrikar kjarkleysi ráðherrans, sem hafði næg rök og lagaheimildir til að láta náttúruna njóta vafans og efna þannig loforð sín við kjósendur. Stjórnmál eiga að snúast um stefnumótun en ekki hagsmunagæslu kerfisins. Þar hafði umhverfisráðherra tækifæri til að standa við stóru orðin, setja náttúruvernd í forgang. Með álveri í Helguvík er ekki aðeins verið að stefna umhverfinu í voða, heldur líka efnahag þjóðarinnar sem nú berst við verðbólgu og himinháa vexti, afleiðingar þenslu af völdum stóriðjuframkvæmda undanfarinna ára. Til viðbótar eru í undirbúningi álver á Bakka og í Þorlákshöfn og vægast sagt langsóttar hugmyndir uppi um olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum, sem allt ýtir undir væntingar og verðbólgu. Þannig er þjóðinni haldið í heljargreipum á meðan engin skilaboð koma frá stjórnvöldum. Það er skaðlegt fyrir byggðirnar sjálfar að vera í stöðugu óvissuástandi um framtíð atvinnumála sinna. Slíkt ástand drepur niður frumkvæði heimamanna. Vísbendingar eru nú um að álversframkvæmdir fyrir austan hafi því miður ekki skilað Austfirðingum þeim viðsnúningi í byggðaþróun sem lofað var á sínum tíma. Vinstri-græn leggja áherslu á að styrkja innviði samfélagsins á hverjum stað, eins og gert hefur verið hér á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu, meðal annars með framúrskarandi heilsugæslu og öflugu skólastarfi. Þá er sérstaklega ánægjulegt hvernig tekist hefur að styrkja samfélagið með gjaldfrjálsum almenningssamgöngum. Enginn vafi leikur á því að blómlegt atvinnu- og menningarlíf á Akureyrarsvæðinu á rætur að rekja til þess að hlúð hefur verið að þessum grunnstoðum samfélagsins. Reynsla Eyfirðinga sýnir að byggðalög á landsbyggðinni eru betur sett án stóriðju og þeirrar röskunar sem slíkri atvinnuuppbyggingu fylgir óhjákvæmilega. Kominn er tími til að stórkarlalegar skammtímalausnir víki fyrir stjórnmálum þar sem hugsað er til lengri tíma með því að byggja upp fjölbreytt og blómleg samfélög á landsbyggðinni með sjálfbærni, félagslegt jafnrétti og stöðugleika að leiðarljósi.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira