Listamenn til sýnis í Húsdýragarðinum 11. júlí 2008 20:28 Kjartan, Snæbjörn og Unnur Birna í Húsdýragarðinum. Vöktu athygli krakkanna sem könnuðust ekki við þessu undarlegu húsdýr.
Hópur ungra listamanna vöktu athygli í Húsdýragarðinum í liðinni viku. Þau hreiðruðu um sig innan girðingar og settu upp skilti líkt og þau væru líka eitt af húsdýrunum - og til sýnis. "Þetta var svona gjörningur um manninn sem dýr. Við settum upp samskonar plakköt og fyrir utan hin búrin með upplýsingum um fengitímann, fjöslkyldustærð og svoleiðis. Við vorum bara eins og dýr í dýragarði," segir Snæbjörn Brynjarsson einn meðlima hópsins sem kallast Stígis. Snæbjörn er nýútskrifaður úr Fræði og Framkvæmd í Listaháskóla Íslands og því ekki ókunnugur framúrstefnulegri gjörningalist.Hér var þemað bíómyndin Zoolander. Snæbjörn segir að atriðið hafi verið óður til myndarinnar."Fólk tók þessu vel. Það var mikið hlegið og fylgst með. Ég held reyndar að yngstu krakkarnir hafi lítið botnað í þessari nýju húsdýrategund en það varð enginn mógðaður - nema kannski unglingarnir sem reyndu að ögra okkur með því að hrópa til okkar." Stígis hópurinn hefur vakið athygli í miðbænum í sumar. Þau hafa stundað svokallað feluleikhús - þóst vera ungir bankastarfsmenn að tapa milljónum á kaffihúsum og svo hefur hópurinn staðið fyrir skylmingareinvígjum á Laugaveginum. "Við erum öll í vinnu hjá Reykjavíkurborg gegnum Hitt Húsið í sumar," segir Snæbjörn en auk hans eru í hópnum Kjartan Yngvi Björnsson og Unnur Birna Björnsdóttir. Næstu helgi mun opna ljósmyndasýning í Hinu húsinu þar sem fólki gefst færi á að virða fyrir sér afrakstur þessara framsæknu listamanna.í Sláturhúsi 5 eftir Kurt Vonnegut ferðast Billy Pilgrim um í tíma og rúmi og endar í lokuðu búri með klámmyndastjörnunni Montana Wildhack á plánetunni Tralfamadore. Hvernig leið Snæbirni að vera til sýnis í dýragarði. "Þetta var nú bara svipað og vera niðrí miðbæ svosem. Maður var bara pínu betur rammaður inn."
Mest lesið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Big Pussy er látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira