120 þúsund króna hjóli stolið í Mosfellsbæ 8. apríl 2008 20:50 Aron á flugi á hjólinu sem hann nú saknar sárt.
Aron Emil Sigurðsson, þrettán ára gamall drengur úr Mosfellsbæ, varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að nýlegu 120 þúsund króna fjallahjóli hans var stolið fyrir utan Lágafellskóla í gær. Móðir hans leitar dyrum og dyngjum af hjólinu. „Hann hefur ekki þorað að fara á hjólinu í skólann í allan vetur og síðan um leið og hann fer á því þá er því hjólinu stolið," segir Lilja Sveinbjörnsdóttir, móðir Arons Emils, í samtali við Vísi. „Við erum í sjokki enda um rándýrt hjól að ræða. Hann hélt fyrst að hann hefði gleymt hjólinu heima hjá vinkonu sinni og ætlar varla enn að trúa því að það sé horfið," segir Lilja um son sinn. Lilja ætlaði að fara á lögreglustöðina í Mosfellsbæ í morgun til að kæra þjófnaðinn en fann ekki stöðina. „Hún er vel falin þannig að ég verð bara að fara á morgun," segir Lilja. Í dag hefur hún ásamt fjölskyldu sinni gengið og keyrt um Mosfellsbæ í von um að finna hjólið. „Það þekkja allir þetta hjól. Það getur enginn hjólað lengi í Mosfellsbænum á því án þess að upp um komist," segir Lilja en hjól Arons Emils er brúnt forláta Norco B-line fjallahjól með tveimur dempurum. Lilja biðlar til fólks í Mosfellsbæ og biður það að hafa augun opin. Hún hefur einnig sent foreldrum barna í Lágafellsskóla tölvupóst þar sem hún biður þá um að líta í kringum sig. „Þetta er sorglegt. Hann er mikill hjólamaður og hefur hugsað afskaplega vel um hjólið. Það hefur verið inni í skúr í allan vetur og þar hefur hann bónað það reglulega," segir Lilja.
Mest lesið Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Innlent Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Erlent „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Innlent Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Innlent Nafngreina árásarmanninn í Manchester Erlent Hamas liðar vilja ekki afvopnast Erlent Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Erlent Rauk upp úr flugvél Jet2 Innlent Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Erlent Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri etur kappi við Bergþór og Ingibjörgu Hafnaði kæru Sameindar vegna Konukots í Ármúla Ingibjörg tekur slaginn við Bergþór Skjálftahrina við Krýsuvík og Kleifarvatn Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Bergþór vill verða varaformaður Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Rauk upp úr flugvél Jet2 Loka leikskóladeild á Stöðvarfirði vegna manneklu Nýjar tillögur falli á herðar vinnandi foreldra Eðlilegt að Ísland skoði að taka þátt Til umræðu að setja upp lokunarpósta við Fossvogsbrú Ragnhildur tekur við Kveik Blæs á sögusagnir um úthugsaða fléttu og ótti við að enda rúmliggjandi Vilja að fallið verði frá hækkun áfengisskatta „Þetta er auðvitað allt of lítið úrtak til að vera marktækt“ Refsing fyrir að reyna að myrða lækni þyngd Miklar breytingar á gjaldskrá leikskóla borgarinnar Nýr stjóri Icelandair vildi bara Airbus þegar hann stýrði Play Föst á Spáni næstu mánuði vegna meðgöngukvilla Óánægja með Kópavogsmódelið: Foreldrar upplifa samviskubit, aukið álag og stöðuga tímapressu Hátt spennustig um borð eftir að ísraelski sjóherinn hóf handtökur Bein útsending: Opnunarmálstofa Menntakviku - Kennaramenntun í deiglunni Hraðamyndavélar settar upp við Þingvelli Hjóla í forseta ASÍ og segja hann afvegaleiða umræðuna Býður sig fram til áframhaldandi formennsku Þúsundir barna bíða og listarnir lengjast POTS-samtök fá lögfræðing í málið: „Margir eru rúmliggjandi í dag“ Sveitarstjóri Mýrdalshrepps vill verða ritari Sjá meira
Óánægja með Kópavogsmódelið: Foreldrar upplifa samviskubit, aukið álag og stöðuga tímapressu