Innlent

Kanna hagkvæmni neðanjarðarlestar á höfuðborgarsvæðinu

Verkfræðingar við Háskóla Íslands hafa myndað starfshóp til að kanna aðstæður fyrir neðanjarðarlestarkerfi á höfuðborgarsvæðinu. Hópurinn mun meðal annars kanna hagkvæmni slíks kerfis.

Björn Kristinsson, verkfræðingur hefur sett fram hugmyndir að neðanjarðarlestarkerfi á höfuðborgarsvæðinu eins og frá hefur verið sagt á Stöð 2.

Nú hefur skrefið verið stigið lengra. Búið er að stofna starfshóp innan verkfræðideildar Háskóla Íslands sem á að kanna aðstæður á Stór-Reykjavíkursvæðinu fyrir slíkt kerfi.

Það sem hópurinn mun skoða er hagkvæmni kerfisins, staðsetningu lestarstöðva, tengikerfi við lestarnar, tæknilega valkosti og æskilega opinbera stefnumörkun. Mun hópurinn leita fanga utan hópsins eftir því sem efni standa til.

Á heimasíðu Björns Kristinssonar kemur fram að forkönnunin sé skref í áttina að bættari umferðarsamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Með henni vonast menn til að hún leiði til nákvæmari áætlanagerðar sem dugar til ákvarðanatöku til framtíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×