Innlent

Gripinn með þrjú kíló af amfetamíni í Leifsstöð

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í samvinnu við tollgæsluna tvítugan mann í gær með rúmlega þrjú kíló af amfetamíni. Maðurinn var í dag úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Hann er sjötti maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi á Suðurnesjum grunaður um umfangsmikið fíkniefnasmygl.

Maðurinn, sem er Íslendingur, var að koma frá París þegar hann var handtekinn en rannsókn málsins er enn á frumstigi. Jóhann Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að í náinni samvinnu tollgæslu og lögreglu hafi rúmlega tvítugur Íslendingur sem var að koma frá París verið handtekinn. Hann hafi reynst við nánari rannsókn vera með þrjú kíló af amfetamíni í tösku sinni.

Maðurinn var í dag úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Þrjú önnur umfangsmikil fíknefnamál eru til rannsóknar á Suðurnesjum. Jóhann segir að þetta sé sjötti maðurinn sem hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við fjögur umfangsmikil mál sem verið sé að rannsaka í náinni samvinnu við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.

Hugmyndir eru uppi um að stía í sundur lögreglu og tollgæslu á Suðurnesjum og er unnið að breytingum þar að lútandi hjá yfirvöldum. Aðspurður hversu mikilvægt samstarf lögreglu og tollgæslu sé segir Jóhann að það sé gríðarlega mikilvægt.

„Við höfum lagt mikla áherslu á það að stjórnunin verði áfram hin sama og okkur takist að varðveita þetta flókna, viðkvæma en árangursríka gangverk sem við vorum lengi að setja saman. Þannig að við leggjum mikla áherslu á það og vonum að stjórnmálamenn komist að skýrri niðurstöðu sem allra fyrst í þessu máli," segir Jóhann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×