Kostnaður við framboð til Öryggisráðs yfir 250 milljónir króna 8. apríl 2008 14:53 Frá fundi öryggisráðsins. MYND/AP
Kostnaður við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í haust nemur um 250-300 milljónir króna frá árinu 2001 og Ísland hefur fengið skrifleg vilyrði um stuðning frá á annað hundrað af 192 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. Þetta segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra. Í ræðu sinni um utanríkis- og alþjóðamál á Alþingi í dag sagði ráðherra að lokaspretturinn í framboði Íslands væri nú hafinn en keppt er við Tyrki og Austurríkismenn um tvö laus sæti í öryggisráðinu fyrir árin 2009-2010. Ingibjörg Sólrún benti að ekki væri á vísan að róa í leynilegum kosningum líkt og þeim sem fram færu hjá Sameinuðu þjóðunum í haust og ríki gæti ekki fagnað sigri fyrr en talið hefði verið talið upp úr kjörkössum. ´ Tilbúin og með báða fætur á jörðinni Þá sagði Ingibjörg að íslensk stjórnvöld hefðu eðli málsins samkvæmt unnið að setunni í ráðinu fari svo að Ísland nái kjöri. Unnið hefði verið að málefnayfirliti og greiningu á helstu umfjöllunarefnum ráðsins en þar stæðu upp úr 31 átakamál og sex meginmálaflokkar. „Komi til þess að við náum kjöri fullyrði ég að við verðum tilbúin og með báða fætur á jörðinni," sagði Ingibjörg. Sem fyrr segir benti Ingibjörg á að Ísland hefði varið á bilinu 250-300 milljónum króna til framboðsins síðastliðin sjö ár. Fréttir hefðu borist af því að keppinautarnir hefðu rekið dýra kosningarbaráttu en Ingibjörg Sólrún lýsti því yfir að Ísland myndi ekki ástunda fjáraustur á lokasprettinum. Þá sagði ráðherra að framboðið hefði þegar skilað ávinningi til framtíðar. Frá árinu 1998, þegar Ísland lýsti yfir framboði til öryggisráðsins, hefði verið tekið upp stjórnmálasamband við 75 ríki. Skýrslu utanríkisráðherra má finna hér.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira