Samdráttur í sölu nýrra bifreiða vel merkjanlegur 8. apríl 2008 14:01 Í mars seldist fjórðungur þeirra Range Rover-bifreiða sem seldust í janúar.
Samdrátt í sölu nýrra bifreiða má vel merkja af sölutölum fyrstu þriggja mánaða ársins frá Bílgreinasambandinu og Umferðarstofu. Egill Jóhannsson, formaður Bílgreinasambandsins, ræddi við Vísi í síðustu viku og sagði umboðin þegar byrjuð að draga úr pöntunum og minnka birgðir. Sem dæmi má skoða skráningar nýrra jeppabifreiða af gerðinni Toyota Land Cruiser 120. Í janúar eru 159 slíkar bifreiðar nýskráðar, 81 í febrúar og að lokum 56 í mars, um þriðjungur nýskráninga janúarmánaðar. Þegar litið er til annarrar vinsællar tegundar, Range Rover, kemur í ljós að sala nýrra bifreiða af þeirri gerð mánuðina janúar, febrúar og mars á þessu ári var 20, 6 og 5. „Við höfum fundið fyrir því að það hefur verið mjög rólegt síðustu tvær vikurnar," sagði Andrés Jónsson, upplýsingafulltrúi B&L sem flytur inn Range Rover. „Árið byrjaði mjög vel en svo kom þessi gengisbreyting og fólk er núna að venjast því að bæði nýir bílar hafa hækkað vegna falls krónunnar og um leið hafa notaðir bílar hækkað af því að verð nýrra bíla er notað sem viðmiðun við verðlagningu þeirra," útskýrði Árni. Hann sagði B&L hafa ráðist í mikla útsölu fyrir hálfum mánuði og hefði verðið þá verið lækkað töluvert meira en gert hefði verið í venjulegu árferði. Þá hefði verið dregið úr pöntunum ýmissa dýrari gerða bifreiða: „Við breyttum pöntunum fyrir mörgum mánuðum þannig að við höfum dregið úr pöntunum á t.d. dýrari gerðunum af Range Rover, áherslurnar í lúxusbílunum hafa breyst og við erum meira að fókusera á dísilvélar og sparneytnari bíla en þessa ofurbíla verður alltaf hægt að sérpanta. Spurnin er meiri núna eftir ódýrari bílum," sagði Andrés. Hann sagði hækkun evrunnar hafa verið spáð innanhúss hjá B&L þegar fyrir áramót og hefði þá tillit verið tekið til þess í pöntunum. Frekar reglulegar sveiflur væru í bílasölu en auðvitað þyrfti fólk alltaf að kaupa bíla. „Síðasta ár var rosalega gott en þetta ár verður samt aldrei jafnslæmt og 2001 þegar aðeins 6.500 bílar seldust, það er þegar búið að selja hátt í það á þessu ári," sagði Andrés að lokum.
Mest lesið Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Innlent Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Erlent Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Innlent Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Innlent „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Innlent Fleiri fréttir Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Sjá meira