Verkfræðiprófessor vill raforkukauphöll á Íslandi 8. apríl 2008 13:00 Egill Hreinsson prófessor.
Álver munu í framtíðinni flytjast frá Íslandi ef hugmyndir Egils Hreinssonar, prófessors við verkfræðideild HÍ, verða að veruleika. Egill telur að hægt sé að leggja raforkusæstreng til Skotlands þannig að hægt sé að versla með raforku á alþjóðamarkaði. „Mín hugmynd er sú að til þess að koma þessum endurnýjanlegu hreinu orkulindum í verð þurfi að tengja saman markaði," segir Egill. Hann bendir á að þetta hafi þegar verið gert með tengingu frá Noregi til meginlands Evrópu. "„Álver sem eru í Noregi eru ekki eins hagkvæm eftir þetta vegna þess að markaðsverðið á raforku hefur hækkað," segir Egill. Egill segir að í Noregi og Hollandi sé verslað með raforku á milli raforkukauphalla, þar sem strengeigandinn kaupi eða selji raforku eftir aðstæðum á markaði. Egill segir að viðskiptin séu svipuð og þegar verslað sé með hlutabréf eða gjaldeyri. Egill segir að strengurinn sé mannvirki sem sé af sömu stærðargráðu og Kárahnjúkavirkun og sé ekki kominn á framkvæmda- eða áætlunarstig. Þegar hann komi verði hann hagkvæmur. Þá muni álverin færa sig annað, eins og þau hafi gert í Noregi. Hugmyndir Egils eru á meðal þess sem rætt verður á málþingi um raforkumál, sem fram fer á Háskólatorgi klukkan fjögur á morgun. Þar mun hann kynna sögulegar raforkutölur frá Íslandi og Bretlandi. Ekki er nákvæmlega hægt að segja til um hversu mikið Íslendingar gætu hagnast af sæstreng sem þessum en Egill bendir á að endurnýjanleg orka án útblásturs muni vaxa í verði. Þá segir hann að verðmæti íslensku orkulindanna nemi að minnsta kosti hundruðum milljarða króna.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira