Hættir sem formaður BHM eftir óróa á aðalfundi 8. apríl 2008 12:01
Halldóra Friðjónsdóttir stígur úr stóli formanns Bandalags háskólamanna eftir að upp úr sauð á aðalfundi bandalagsins fyrir helgi. Ákveðin óánægja hefur verið með framgöngu formannsins, segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður stærsta stéttarfélagsins innan BHM. Upp úr sauð á fundinum síðdegis á föstudag þegar samþykkja átti fjárhagsáætlun samtakanna og tillögu uppstillingarnefndar um nýja stjórn. Um tíu þúsund manns eru í aðildarfélögum BHM og þeirra stærst er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Fulltrúar stærstu félaganna lögðu til að aðalfundi yrði frestað fram á haust en síðan var samþykkt að fresta honum um einn og hálfan mánuð. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sagði í samtali við fréttastofu Stöð 2 í morgun að ákveðin óánægja hefði verið með framgöngu formannsins sem hefði ekki verið opinn fyrir hugmyndum um breytingar. Hún játti því að félagið hefði viðrað þá hugmynd við nokkra félaga um að gefa kost á sér í formannsstól en enginn hefði verið tilkippilegur. Þá benti hún á að skrifstofa Félags hjúkrunarfræðinga væri stærra apparat en hjá BHM, félagið hefðu hug á að efla hjá sér starfsemina. Um 16 milljónir rynnu frá félaginu til BHM á þessu ári og það fé gæti nýst betur beint fyrir hjúkrunarfræðinga innan félagsins. Töluverður órói hefur verið innan bandalagsins síðan hjúkrunarfræðingar ræddu á síðasta ári þann möguleika að segja sig úr BHM. Ákveðið var að sitja áfram innan BHM, enda hafa hjúkrunarfræðingar áhyggjur af því að lífeyrisréttindi kynnu í skerðast í kjölfarið. Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggst Halldóra ekki gefa kost á sér áfram og hafa þegar nokkrar ábendingar borist uppstillingarnefnd um nýtt formannsefni.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira