Vörubílstjórar hóta því að lama þjóðfélagið 8. apríl 2008 11:46 MYND/Stöð 2
Sturla Jónsson, talsmaður vörubílstjóra sem staðið hafa fyrir mótmælum síðustu daga, segir lítið hafa komið út úr fundi hans og Árna Mathiesen fjármálaráðherra. Bílstjórarnir hóta enn alvarlegri aðgerðum en þegar hafa litið dagsins ljós. „Í raun og veru kom ekkert út úr þessum fundi. Við fengum bara sömu svör og hjá Geir þegar hann var fjármálaráðherra," segir Sturla. „Þeir eru að skoða þetta, en maður veltir því fyrir sér hvort það líði ekki bara önnur þrjú ár eins og síðast. Hann gaf samt eitthvað út um að það verði eitthvað gert í málum okkar næsta haust, en við kaupum ekki mjólkina í haust," segir Sturla og bætir því við að það sé „stjórnlaus della" að ætla sér að leysa málin í haust. Sturla segir að bílstjórarnir hafi rætt málin eftir fundinn og séu sammála um að þeir séu hvergi nærri hættir. „Það er bara spurning hvenær menn taka stóra stoppið." Aðspurður hvað hann á við með „stóra stoppinu" segir Sturla: „Þá lamast þjóðfélagið einfaldlega." Sturla segir menn óhrædda við að taka afleiðingunum af svo víðtækum mótmælum. „Við fáum varla meiri dóm en morðingjar," segir hann. Hann áréttar þó að það hafi verið „ágætt að tala við Árna," og að hann hafi brýnt fyrir ráðherranum að ríkistjórnin verði að fara að ræða þessi mál af alvöru. „Menn vilja bara geta unnið í friði, þetta er ekki flóknara en það."
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira