Sæfari siglir loks til Grímseyjar á föstudag 8. apríl 2008 11:03 MYND/Stöð 2
Grímseyingar gleðjast væntanlega á föstudag því þá fer Grímseyjarferjan Sæfari í sína fyrstu ferð frá Dalvík. Farið verður klukkan 10 og er fjölmiðlum boðið með í för samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Athöfn verður um borð í Sæfara í Grímsey að viðstöddum Grímseyingum, samgönguráðherra og vegamálastjóra og ef veður leyfir verður siglt í kringum Grímsey. Málefni Grímseyjarferjunnar voru í brennidepli í fyrrasumar en þá komst upp að kostnaður við endurgerð hennar var umtalsvert meiri en áætlanir gerður ráð fyrir. Miklar tafir hafa orðið á afhendingu ferjunnar en þær skýrast meðal annars af því að skipið var í mun verra ásigkomulagi en talið var þegar það var keypt til landsins og af margvíslegum breytingum sem gerðar voru á meðan á viðgerðartímanum stóð. Allt þetta hefur hleypt upp verðinu en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að það kostaði 150 milljónir að kaupa og endurnýja ferjuna. Ekki liggur fyrir hver kostnaðurinn við endurbæturnar og kaupin er en að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, verður hann að líkindum upplýstur á föstudag.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira