Árni Matt skálaði í Skjálfta í Köben 15. september 2008 16:21 Árni Mathiesen og Guðrún Ágústsdóttir í opnunarhófinu. MYND/Hasse Ferrold
Árni Mathiesen fjármálaráðherra var á meðal gesta í sendiráðinu í Kaupmannahöfn síðasta fimmtudag en þá var haldið „formlegt opnunarhóf bjórsins Skælv," en sá góði mjöður gengur undir nafninu Skjálfti hér á landi og er íslensk framleiðsla frá Ölvisholti Brugghúsi. Guðrún Ágústsdóttir sendiherrafrú setti opnunarhófið en Árni Mathiesen fjármálaráðherra, forsvarsmenn Ölvisholts og dreifingaraðila þeirra í Danmörku fluttu ávörp. „Bjórinn Skælv verður frá og með deginum í dag 15.september, fáanlegur í bjór og víndeild Magazin du Nord í Kaupmannahöfn. Í nóvember kemur svo á markað jólaöl frá Ölvisholti sem fer í sölu í Coop verslunarkeðjunni, í kjölfarið fer svo Skælv í dreifingu víða um Danmörku í sömu verslunarkeðju," segir í tilkynningu frá Ölvisholti. Í sömu tilkynningu er sagt frá því að bjórinn góði hafi fengið glimrandi dóma í danska blaðinu Extra Bladet. „Bjórinn Skælv var síðan kynntur á European Beer Festival sem haldin var í Carlsberg verksmiðjunni í Kaupmannahöfn helgina 12-14 september. Þar fékk bjórinn góða dóma hjá þeim sem smökkuðu en heimsóknin til Danmerkur var svo kórónuð með bjórdómi Ole Madsen í Extra Bladet á laugardeginum 13. sept 08 en þar fékk Skjálfti 6 stjörnur af 6 mögulegum," segir í tilkynningunni og því bætt við að hamingjuóskum hafi rignt yfir eigendur og bruggmeistara bjórsins enda um mikinn heiður að ræða. Ölvisholt Brugghús stefnir að því að flytja út 100 tonn af bjór til Danmerkur á ári hverju en þegar hefur verið gengið frá samningum um söluna við dreifingaraðila þar í landi. Til þessa hafa um 50 - 60 tonn af bjór verið flutt út þannig að um mikla aukningu er að ræða.
Mest lesið Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Lífið „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Lífið Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Lífið samstarf Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Bíó og sjónvarp Rick og Morty á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Sjá meira