Setja verklagsreglur um viðbrögð skóla við óveðri 25. nóvember 2008 10:31 MYND/GVA
Verið er að leggja lokahönd á verklagsreglur um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs og munu þær gilda fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Reglurnar voru kynntar á fundi stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á föstudag en slökkviliðinu var falið að búa þær til í samvinnu við fræðsluyfirvöld. Að sögn Jóns Viðars Matthíassonar slökkviliðsstjóra var ákveðið að ráðast í gerð reglnanna í kjölfar óveðurs sem gekk yfir landið um síðustu áramót. „Þá raskaðist skólahald og það bárust tilkynningar um að sumir skólar væru lokaðir en aðrir opnir. Það var ekki samhljómur í þessum tilkynningum og því fórum við að vinna að samræmdum verklagsreglum fyrir allt höfuðborgarsvæðið í samvinnu við fræðsluyfirvöld," segir slökkviliðsstjóri. Jón Viðar segir að ákveðnir grunndvallarþættir séu í verklagsreglunum, til að mynda að skólarnir séu opnir fyrir börn nema í algjörum neyðartilvikum þar sem starfsfólk komist ekki til vinnu. Þá sé einnig sá grundvallarþáttur að foreldrar beri ábyrgð á börnum sínum. „Ef þeir meta það svo að það sé ekki fært ber þeim að tilkynna það," segir Jón Viðar. Á síðustu árum hefur sjaldan þurft að aflýsa skólahaldi vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu en hér áður fyrr, þegar það var algengara, var lesið upp í útvarpi hvar kennsla félli niður. Jón Viðar bendir á að 80-90 skólar séu nú á höfuðborgarsvæðinu og því sé gert ráð fyrir að ein tilkynning yrði gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið í heild sinni ef til þess kæmi. Jón Viðar segir slökkviliðið hafa átt gott samstarf við fræðlsuyfirvöld um samningu verklagsreglanna og verið sé að leggja lokahönd á þær. Reglurnar verði svo væntanlega kynntar á blaðamannafundi innan tíðar.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira