Norðmaðurinn hættur störfum fyrir Geir 25. nóvember 2008 20:28
Norðmaðurinn Björn Richard Johansen, ráðgjafi Geirs H. Haarde forsætisráðherra, hefur lokið störfum fyrir forsætisráðuneytið. Björn Richard var í viðtali í Kastljósinu í kvöld þar sem hann sagði að verkefni hans hafi verið að koma upp neyðaráætlun fyrir stjórnvöld í kjölfar bankahrunsins og því verki sé nú lokið. Björn Richard segir alrangt að hann hafi ráðlagt stjórnvöldum að halda forsvarsmönnum Fjármálaeftirlitsins frá kastljósi fjölmiðla eins og haldið hefur verið fram. Þvert á móti hafi hann gagnrýnt sambandsleysi FME við fjölmiðla. Hann segir einnig rangt að hann hafi ráðlagt ríkisstjórninni að halda blaðamannafundi sína seint um daginn til þess að gera fjölmiðlum erfitt fyrir að vinna úr upplýsingum sem þar komu fram. Hins vegar hafi margt gerst á fyrstu dögum hrunsins og því hafi verið best að hafa fundina síðdegis til þess að koma sem mestum upplýsingum á framfæri. Eins og bent hefur verið á í Kastljósinu hélt Björn Richard áfram að vinna fyrir sinn gamla vinnuveitenda, Glitni, eftir að hann hóf störf í ráðuneytinu. Í kvöld viðurkenndi hann að það hefðu verið mistök en benti á að mikið gangi á á krísutímum. Hins vegar mætti segja að hann hafi í raun verið ríkisstarfsmaður hjá Glitni þar sem ríkið hafði tekið yfir bankann á þessum tíma.
Mest lesið Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Innlent Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Erlent Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Erlent Standa fast á því að undirskriftin sé ekki Trumps Erlent Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Innlent Leið yfir nýja ráðherrann á fyrsta fundi Erlent Bylgja Dís er látin Innlent Útsending komin í lag Innlent Ísraelar gera loftárásir á Katar Erlent Fleiri fréttir Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Útsending komin í lag Forseti biðlar til þingmanna og ólíkleg þátttaka í Eurovision Skipar ekki nýjan vararíkissaksóknara Teppa vegna minniháttar umferðarslyss á Kringlumýrarbraut Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Skipar nefnd um jafnrétti karla Hvatti þingmenn til að halda ekki áfram að setja met í málþófi Bein útsending: Guðsþjónusta og setning Alþingis „Við munum reyna að bæta öll mál“ „Er þetta allt sem Ísland getur gert?“ Bókun 35 verði keyrð í gegnum þingið Ríkisstjórnin sýnir á spilin og Alþingi sett í dag Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Mikill meirihluti hlynntur Hvammsvirkjun Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Boða 157 mál á 157. löggjafaþingi og hér er það helsta Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Gagnrýnir hæstu ríkisútgjöld sögunnar í fjárlagafrumvarpi Svona var kynning ríkisstjórnar á þingmálum vetrarins Reyksprengju kastað inn á pall í Hafnarfirði Verið ættleiddur af Íslendingum Fyrsti dagur Kvikmyndaskólans: „Það besta sem hefur gerst fyrir skólann síðan í apríl“ Hækka hámarksgreiðslur um hundrað þúsund krónur Uppfæra ekki fríverslunarsamning og banna tvo ráðherra Tveir fluttir til aðhlynningar eftir árekstur á Suðurlandsvegi Tekist á um fjárlög, lykkjumálið og aleigan í rafmynt Einn bílstjóri án leyfis og skráningar „Sultaról rithöfunda enn hert“ í fjárlögum Óásættanlegt að almennir starfsmenn séu beittir óeðlilegum þrýstingi Sjá meira