Þýskir innistæðureigendur Kaupþings þakka þjóðinni fyrir velvild 25. nóvember 2008 09:34 Karlheinz Bellmann kom hingað á dögunum á vegum þýskra innistæðueigenda.
Hópur Þjóðverja, sem átti innistæður á reikningum Kaupþing Edge í Þýskalandi, hefur sent opið þakkarbréf til Tryggingarsjóðs innistæðueigenda og fjárfesta og íslensku þjóðarinnar fyrir velvild í sinn garð. Hópurinn stofnaði heimasíðu í Þýskalandi undir yfirskriftinni „Kaupthing Edge, hjálpið okkur" og var fulltrúi þeirra, Karlheinz Bellmannn, á ferð hér á landi á dögunum til þess að kanna stöðu 30 þúsund innistæðueigenda hjá Kaupthing Edge í Þýskalandi. Í hinu opna bréfi til þjóðarinnar kemur fram sérstakt þakklæti til starfsmanna Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta fyrir að hafa svarað spurningum Þjóðverjanna kunnáttusamlega og af sérstakri velvild, sem ekki verði sagt um þýsk stjórnvöld. „Herra Karlheinz Bellmann var á Íslandi og þar tók almenningur honum afar vingjarnlega, sem snart okkur mjög. Þessi hlýhugur og undirtektir fjölmiðla studdu framgang máls okkar verulega áleiðis og eiga örugglega sinn þátt í að endanleg niðurstaða fékkst," segir í tilkynningunni. Þar er væntanlega vísað til yfirlýsinga þýska fjármálaráðherrans um að Þjóðverjar láni Íslendingum fé vegna reikninganna í Þýskalandi. Þýsku innistæðueigendurnir hjá Kaupþingi vonast enn fremur til þess að Ísland komi sterkara út úr kreppunni. „Við vildum fúslega liðsinna ykkur, en það reynist okkur þó ekki unnt. Engu að síður vonumst við til að komast einhvern tíman í frí til Íslands, og geta þannig endurgoldið lítinn hluta af vinsemd ykkar og hjálpsemi," segir í bréfinu.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira