AGS blandar sér ekki í stjórnmál á Íslandi 25. nóvember 2008 14:52 MYND/Vilhelm
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn blandi sér ekki í stjórnmál hér á landi og segir út í hött að halda því fram að sjóðurinn sé að leggja stein í götu lýðræðis á Íslandi. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri - grænna. Steingrímur vísaði til þess að krafan um kosningar í landinu væri þung og síst á undanhaldi þótt ríkisstjórnin hefði staðist vantrauststillögu í gær. Skilja hefði mátt á forsætisráðherra að engar breytingar mætti gera á ríkisstjórn vegna þess að umsókn hefði verið lögð inn á hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þannig kæmu eftirlitsmenn frá sjóðnum í febrúar og því væri ekki hægt að kjósa að sögn forsætisráðherra. Vísaði Steingrímur til þess að samstarf sjóðsins og íslenskra stjórnvalda væri til tveggja ára og spurði Steingrímur hvort Geir væri með orðum sínum að segja þjóðinni að ríkisstjórnin sæti í skjóli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Spurði hann enn fremur hvort ráðherra ætlaði að sitja með lemstraða ríkisstjórn upp á náð og miskunn sjóðsins. Geir H. Haarde sagði Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ekki blanda sér í stjórnmál hér á landi. Sagði hann stjórnvöld hafa gert samkomulag við sjóðinn og fyrsti hluti áætlunar kæmi til framkvæmda á næstunni. Áætlunin yrði svo endurskoðuð í febrúar. Að lokinni endurskoðun sem kæmi í ljós hvort þau lönd sem gefið hefðu vilyrði um lán myndu veita þau. Sagði Geir að ef Alþingi hefði samþykkt vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar í gær. Þá hefðu að líkindum verið kosningar um miðjan febrúar og því hefði ekki verið ríkisstjórn til þess að fylgja eftir fyrsta áfanga samkomulagsins við AGS. Sagði Geir að við myndum í framhaldi af ákvörðunum í febrúar ganga nokkuð greiðlega í gegnum áætlunina þar til henni lyki árið 2010 og þá reiknaði hann með að horfur í efnahagsmálum væru farnar að batna verulega. Sagði hann úti í hött og rangt að segja að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væri að leggja stein í götu lýðræðis í landinu. Steingrímur sagði þá að ráðherra hefði nú dregið í land og sagt að breytingar gætu orðið eftir febrúar. Þá benti hann á að það væri eins og Geir áttaði sig ekki á að ef vantraust væri samþykkt væri myndaður nýr meirihluti sem myndi gera ráðstafanir. Sagði hann yfirlýsingar Geirs um upphlaup í landinu ímynd í höfði Geirs og ætti ekkert skylt við þingræðislegar reglur.
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Fleiri fréttir Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Sjá meira