Lífið

Svartir englar ekki á Dagvakt

Þórhallur Gunnarsson sem jafnframt er menntaður leikari er dagskrárstjóri innlendrar dagskrár á Ríkissjónvarpinu.
Þórhallur Gunnarsson sem jafnframt er menntaður leikari er dagskrárstjóri innlendrar dagskrár á Ríkissjónvarpinu.

Íslensku sjónvarpsþættirnir Svartir englar og Dagvaktin verða ekki til sýningar á sama tíma í haust í Ríkissjónvarpinu og á Stöð 2.

Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, gagnrýndi nýverið í Fréttablaðinu Ríkissjónvarpið og Þórhall Gunnarsson, dagskrárstjóra innlendrar dagskrár á Ríkissjónvarpinu, fyrir að stilla Svörtum englum upp á sama útsendingartíma og Dagvaktin. Þórhallur svaraði og sagði að Ríkissjónvarpið tæki ekki tillit til þess í dagskrársetningu hvað Stöð 2 væri að gera.

Þórhallur og Pálmi fóru í framhaldinu yfir málið og hafa nú slíðrað sverðin. ,,Við ákváðum þetta fyrst og fremst með hagsmuni áhorfenda í huga sem geta nú notið innlends sjónvarpsefnis á báðum stöðvum," segir Þórhallur sem kveðst ánægður með niðurstöðuna.

Báðir þættirnir verða frumsýndir næstkomandi sunnudagskvöld.

Kátir saman. Félagarnir Georg, Ólafur Ragnar og Daníel.

Daníel, Georg og Ólafur Ragnar sameinast á Dagvaktinni

Dagvaktin er sjálfstætt framhald af Næturvaktinni sem sló í gegn síðastliðinn vetur og vann tvenn Eddu-verðlaun 2007 í flokkunum Leikið sjónvarpsefni ársins og Vinsælasti sjónvarpsþátturinn. Í þáttaröðinni verða endurnýjuð kynnin við þá þremenninga, Georg Bjarnfreðarson, Ólaf Ragnar og Daníel.

Í upphafi þessarar nýju þáttaraðar liggja leiðir þeirra saman á ný alveg óvænt, og það á ólíklegasta stað sem hugsast getur, vestur á Hótel Bjarkalundi. Þar vinna þeir enn á ný saman og hafa nú fengið nýjan yfirmann, hina þéttvöxnu og ákveðnu Guggu, sem leikin er af Ólafíu Hrönn Jónsdóttur.

Allt að fara til fjandans í Svörtum englum

Svartir englar er ný íslensk spennuþáttaröð byggð á bókunum Skítadjobb og Svartir englar eftir Ævar Örn Jósepsson. Sagan gerist í Reykjavík nútímans og eru höfuðpersónur þáttaraðarinnar fjórir lögreglumenn: Stefán, Katrín, Árni og Guðni.

,,Þau eru sammála um að á Ísland sé allt að fara til fjandans. Örvæntingarfull barátta lögreglunnar við mjög erfiðar aðstæður er undirliggjandi tónn þáttaraðarinnar. Innri barátta aðalpersónanna og veikleikar þeirra setja svip á söguna og sú tilfinning að það sé skítadjobb að vera í lögreglunni er greinileg," segir um þáttinn á vefsíðu Rúv.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.