Innlent

Búist við 2000 umsækjendum vegna kreppu

Frá Háskólatorgi.
Frá Háskólatorgi.

Háskóli Íslands býst við á annað þúsundum umsækjendum um nám í skólann. Umsóknarfrestur á vormisseri 2009 var framlengdur til 15. desember vegna sérstakra aðstæðna á vinnumarkaði.

,,Ljóst er að breytingar á vinnumarkaði hafa haft mikil áhrif á áhuga fólks á grunnnámi og framhaldsnámi við Háskóla Íslands," segir í tilkynningu frá HÍ.

Mikill áhugi er á námi við HÍ en umsóknir um nám á vormisseri eru nú orðnar liðlega 850. Búist er við að umsóknir verða á annað þúsund þegar umsóknarfresti lýkur.

Heildarfjöldi umsókna í framhaldsnám í skólann er 477 en af þeim eru um 40 umsóknir um doktorsnám. Þetta er liðlega fimmföldun frá síðasta ári en þá voru 94 umsóknir um framhaldsnám afgreiddar.

Umsóknir í grunnnám eru hartnær 400 sem er nærri tvöföldun frá því á sama tíma í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×