Innlent

Mánaðarfangelsi fyrir að stela vodkaflösku

Vodkaflöskunni nappaði maðurinn úr Vínbúðinni í Hafnarfirði.
Vodkaflöskunni nappaði maðurinn úr Vínbúðinni í Hafnarfirði.

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi 48 ára gamlan karlmann í eins mánaðar fangelsi fyrir að stela Smirnoff vodkaflösku að verðmæti 3.250 krónur úr Vínbúðinni í Hafnarfirði.

Manninum var einnig gert að greiða ÁTVR verðmæti flöskunnar ásamt vöxtum. Refsingin er skilorðsbundin og skal niður falla haldi hann almennt skilorð næstu tvö árin.

Maðurinn játaði brot sitt skýlaust og þótti því hæfileg refsing eins mánaðar fangelsi eins og fyrr segir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×