Umboðsmaður hefur áhyggjur af framkvæmd neyðarlaga 3. desember 2008 15:10 Tryggvi Gunnarsson er umboðsmaður Alþingis.
Umboðsmaður Alþingis hefur á heimasíðu sinni birt grein þar sem hann reifar samskipti sín við fulltrúa stjórnvalda vegna setningar neyðarlaganna svokölluðu í október. Umboðsmaður fundaði með fulltrúum ráðuneyta og Fjármálaeftirlitsins þann 28. október þar sem hann taldi nauðsynlegt að koma á framfæri við fulltrúa stjórnvalda þeim áhyggjum sem hann hefði vegna stjórnsýslu við framkvæmd neyðarlaganna. Þar var farið yfir minnisblað með tólf tölusettum liðum sem umboðsmaður vildi vekja athygli á. Mánuði síðar sendi hann forsætisráðherra bréf þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvort stjórnvöld hefðu brugðist við ábendingum hans. Svör hafa nú borist og birtir umboðsmaður svörin á heimasíðu sinni samhliða upphaflegu atriðunum sem snúa meðal annars að því að spyrja hver lagaleg staða skilanefndanna sé og minna á að yfirlýsingar stjórnvalda verði að vera efnislega réttar, en í því sambandi er rætt um fréttir frá stjórnvöldum um stöðuna í Icesave málinu og það sem snéri að Hollendingum. Þá spyr umboðsmaður út í nýju bankana og spyr hvort þeir séu opinber hlutafélög. Umboðsmaður Alþingis leggur áherslu á áherslu á að „stjórnvöld virði þær grundvallarreglur sem taldar eru gilda um meðferð valds stjórnsýslunnar gagnvart borgurunum og um gegnsæi í athöfnum og ákvörðunum sem stjórnvöld taka við framkvæmd og skipulagningu þessara mála." „Þetta er sérstaklega brýnt þar sem sá lagarammi sem Alþingi hefur búið ákvörðunarvaldi stjórnsýslunnar um þessi mál er takmarkaður og það þótt stjórnsýslunni séu fengnar verulegar og viðamiklar heimildir til þess að hlutast til um málefni einstaklinga og fyrirtækja," segir í bréfi sem hann sendi forsætisráðherra eftir að svör hans höfðu borist. Í sama bréfi kemur fram að umboðsmaður muni ekki, að minnsta kosti að sinni, taka efnislega afstöðu til þess sem fram kemur í svörunum. Spurningar umboðsmanns og svör forsætisráðherra má sjá hér.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira