Innlent

Sjö handteknir í Árbæ

Sjö voru hanteknir
Sjö voru hanteknir

Sjö voru handteknir fyrr í dag í Árbæ. Lögreglu barst tilkynning um að slagsmál væru í húsi einu í hverfinu en þegar hún kom á vettvang gátu mennirnir sem þar voru ekki, eða þeir neituðu, að gefa upplýsingar um málið.

 

Mennirnir eru af erlendum uppruna og sögðust hvorki tala íslensku né ensku. Þegar enginn þeirra gat heldur framvísað persónuskilríkjum ákvað lögregla að handtaka mennina alla og fór með þá niður á stöð. Þeim var svo sleppt að lokinni skýrslutöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×