Innlent

Öryggisvörðurinn kominn á gjörgæslu - Árásarmaðurinn í gæsluvarðhald

Öryggisvörðurinn sem varð fyrir árás í verslun 10-11 við Austurstræti í gærnótt liggur nú á gjörgæsludeild. Meiðslin sem hann hlaut þegar maður lamdi hann í höfuðið með glerflösku í versluninni eru alvarlegri en talið var í upphafi.

Árásarmaðurinn virðist hafa haft ansi sterkan brotavilja því vitni sögðu Vísi frá því að lögregla hefði fjarlægt manninn úr versluninni fyrr um nóttina vegna óláta.

Einum og hálfum tíma síðar hafi hann hins vegar birst aftur ráðist þá á öryggisvörðinn með glerflösku með fyrrgreindum afleiðingum.

Eitt vitni sagði Vísi árásarmaðurinn hafi gengið inn í verslunina með sígarettu. Þegar öryggisvörðurinn hafi bent honum á að reykingar væru ekki leyfðar inni hafi árásarmaðurinn fleygt sígarettunni logandi í öryggisvörðinn. Manninum var þá skipað að yfirgefa verslunina en hann brást við með því að slá öryggisvörðinn í hnakkann með glerflösku.

Áverkarnir sem öryggisvörðurinn hlaut af völdum þessarar árásar voru lífshættulegir. Að sögn lögreglu verður því þess að öllum líkindum krafist að árásarmaðurinn verði úrskurðaður í gæsluvarðhald.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×