Innlent

Safna með bílaþvotti

Vogaskóli
Vogaskóli

Nemendur í 10. bekk Vogaskóla safna í dag fyrir próflokaferð sem þeir ætla að fara til Vestmannaeyjum að loknum samræmdum prófum.

Af því tilefni ætla nemendurnir að bjóða fólki upp á bílaþvott og þurrkun á planinu hjá Olís í Álfheimum.

Vísir ræddi við móður eins nemandans sem sagði að krakkarnir væru snöggir en vandvirkir. Verðið er sanngjarnt, 1500 krónur og rennur allur ágóði beint í ferðasjóðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×