Hætt við stækkun í Straumsvík og álveri á Bakka frestað 15. desember 2008 06:00
Rio Tinto Alcan er hætt við fyrirhugaða stækkun álversins í Straumsvík. Einnig er ljóst að fyrirhuguð bygging álvers á Bakka verður ekki á dagskrá næstu árin. Landsvirkjun og Þeistareykir hf. hafa samþykkt að ganga til könnunarviðræðna við áhugasama orkukaupendur. Jacynthe Côté, forstjóri Rio Tinto Alcan, tilkynnti Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra þá ákvörðun á miðvikudag að ekkert yrði af fjörutíu þúsund tonna stækkun álversins í Straumsvík. Fyrirtækið ætlaði að stækka álverið á næsta ári innan byggingarreits samkvæmt gildandi deiliskipulagi Hafnarfjarðar. Framleiðslugeta álversins átti þannig að fara úr 185 þúsund tonnum í 225 þúsund tonn. Mjög hefur verið horft til þessarar framkvæmdar til að slaka á núverandi efnahagskreppu. Töluverðar breytingar fylgja stækkun sem hefði þýtt atvinnu fyrir töluvert marga iðnaðarmenn, verkfræðinga og hönnuði á verktímanum. Ákvörðun álrisans getur einnig sett áætlanir Landsvirkjunar um Búðarhálsvirkjun í uppnám og þar með gagnaver Verne Holding við Keflavíkurflugvöll sem hafði skrifað undir samning um orku frá virkjuninni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur álfyrirtækið Alcoa einnig ákveðið að fresta byggingu álvers við Bakka í nokkur ár. Fyrirtækið mun halda áfram með mat á umhverfisáhrifum vegna álversins og hefur áhuga á svæðinu til uppbyggingar síðar. Landsvirkjun og Þeistareykir hf. hafa samþykkt að ganga til könnunarviðræðna við fyrirtæki sem hafa áhuga á þeirri orku sem Alcoa hafði tryggt sér með viljayfirlýsingu við Landsvirkjun. Viljayfirlýsingin rann út 1. nóvember þegar ekki náðist samkomulag um þátttöku álfyrirtækisins í kostnaði við rannsóknaboranir. Þetta er með vitund Alcoa á Íslandi. Ákvörðunin um könnunarviðræður við aðra útilokar ekki að Alcoa geti tryggt sér orkuna, sækist fyrirtækið eftir því. - shá
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Gefur skít í helvítishótanir Trumps Innlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Innlent Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Innlent Fleiri fréttir Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Sjá meira